Færsluflokkur: Bloggar

Hálfur hvítur.

Hversvegna er aðeins tifað á því að Obama sé blökkumaður og í skársta lagi hálfur blökkumaður.  Það er ekkert minnst á að hann sé hálfur hvítur.  Móðir hans er alhvít. 

Eins er talað um Tiger Woods sem blökkumann, en móðir hans er Taílensk svo hann er þessvegna asískur eins og blökkumaður.

Kv. Björn bóndi.


mbl.is Verður kynþátturinn aðalmálið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aflífun (svæfing) er í lagi - Kviksetning er kvikindisháttur

Ég hef enga trú á því að eigandi hvolpsins hafi framið þennan kvikindishátt.  Ég hef ekki trú á því að nokkur karl eða kona, barn eða fullorðinn sem hefur haft svona dýr í sinni umsjá geti fargað tryggasta vini mannsins með þessum hætti.

Ég skil betur þegar gæludýrum er ofaukið og ekki hægt að koma þeim í fóstur eða til annars eiganda, þá er hafður sá hátturinn á að fara til dýralæknis sem sprautar dýrið og svæfir það sársaukalaust, svefninum langa.  Sé dýrið ekki gæludýr, heldur hluti af búpeningi, þá er það skotið - búið: "end of story".  Það var gert í sveitinni og ekkert að því.  En aðalmálið var að skepnurnar þurfi ekki að kveljast.

En með tíkina litlu, hvolpinn, þá get ég trúað þessu á einhverja sem annaðhvort hafa viljað hefna sín á eigandanum, eða einfaldlega eru þessi kvikindi sem við þekkjum frá því, á hávetri í frostum þegar köttum var dýpt í vatn, hent ofan í tunnu með loki yfir og þeir látnir frjósa, til þess eins að fullnægja ónáttúrulegum hvötum gerandans.

Ég reyni ekki að vera hatursfullur né hefnigjarn.  Hinsvegar, ef næst í þetta fólk með þessar hvatir, þá finnst mér að það eigi að fá vinnu hjá Rússum í Gúlaginu í Síberíu.  Bara í eitt til tvö ár, það ætti að nægja.  Síðan að þetta félk fengi loforð um framhaldsvinnu á sama stað ef það brýtur af sér aftur með sama eða álíka hætti.

Kveðja, Björn bóndi.


mbl.is Eigandi hvolpsins fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær þorir Alþingi að segja NBA að hypja sig úr Írak og Afganistan?

Þessi kerlingaraumingi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem starfar sem utanríkisráðherra Íslendinga lætur Condolessu Rice fjöldamorðingja og utanríkisráðherra BNA tala svo niður til sín vegna hvalveiðimála, að utanríkisráðherra Íslendinga lyppast niður og segist sjálf vera á móti hvalveiðum......... bara svona fyrir kurteisissakir.....!!   (Conda, við erum vinir, við erum alltaf sammála - hugsunarhátturinn.)

Svo þorir hún ekki að svara fullum hálsi að mótmæla fjöldamorðum NBA og taglhnýtinga þeirra, Bretum, Dönum og fleirri, þegar Condolessa Rice fer fögrum orðum  um eigin fjöldamorð í Írak og Afganistan og pyntingar í Guantanamo (Kúbu), Abu-Grahib (Írak) og Bagram (Afganistan) fangabúðunum og síðan í fangelsum leppríkja BNA út um allan heim, sem taka við föngum BNA til að pynta þá "löglega" í sínum ríkum. 

Hvar eru stóru orðin frá því þegar BNA & Co., réðust inn í Írak?  -  Nei!  Nú á að sleikja nokkra rassa og reyna að komast inn í Öryggisráð SÞ.  Hvað höfum við Íslendingar að gera þangað?  - Verandi taglhnýtingar Bandaríkjamanna og undirlægjur af verstu tegund eins og utanríkisráðherra Íslands er, stjórnmálamaður sem svíkur eigin málstað!!   - Svei!

Nú fór ég í fýlu.

Björn bóndi.

Og


mbl.is Bandaríkjaþing gagnrýnir hvalveiðar Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmið hann samt! Hann er jú karlmaður!

Nú verður allt vitlaust, femínistarnir munu krefjast aftöku án dóms og laga eins og fyrri daginn.

"Hann er karlmaður. Sama hvort hann gerði þetta eða ekki.  Hann hefði gert þetta ef hann hefði fengið tækifæri til þess." 

Kveðja,

Björn bóndi.

 


mbl.is Sýknaður af ákæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brennivínið orðið of dýrt - hef ekki efni á að kaupa mér skó!!

Hann frændi minn Þórður Guðjohnsen, löngu kenndur (við Bakkus líka) lét eitt sinn hafa þetta eftir sér þegar hann var eina ferðina enn að drekka á barnum uppi í risi á Naustinu við Vesturgötu.  Hækkun á áfengi hafði nýlega átt sér stað, og Þórður sem var orðlagður fyrir sína sérstöku kímni sem var einatt blönduð (a dash of) hæðni sagði (skrollaði): "Brennivínið er orðið svo dýrt að ég hef ekki efni á að kaupa mér skó."

Bless, Björn bóndi.


mbl.is Aukin sala á áfengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er bjart yfir þessari konu - til hamingju Reykjavík.

Nú þykir mér týra fyrir Reykvíkinga.  Loksins komið ljós í endann á göngunum.  Þessi Hanna Birna Kristjánsdóttir virðist ekki vera einhver "elsku mamma", heldur kona: "Hörð í horn að taka" eða eins og Kaninn kallar það: "A tough cookie" (eða "ei töff kúkkí" svo Jenný Anna skilji þetta).

Til hamingju Reykvíkingar!

Kær kveðja,

Björn bóndi.


mbl.is Hanna Birna verður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hata ÓPAL auglýsinguna því ég er andfúll og auglýsingin er árás á mig og mína.

Þessi auglýsing SÍMANS á 3-D farsímanum er að mínu mati, bæði sniðug og skemmtileg. Ef kaþólikkar eru fúlir út í þessa auglýsingu, þá geta allir þeir sem eru andfúlir vera illir út í Ópal augýsinguna og hóta að kaupa aldrei vörur frá Ópal framleiðendunum o.s.frv.

Hinsvegar þá virðist hún vera alltof dýr, allt of margir leikarar, það vantar bara Charlton Heston ameríska (Biblíu-kvikmynd-leikarann sem var aðalstjarnarn í öllum stóru Biblíusögumyndunum, [það var hann sem virtist alltaf vera að rembast við að kúka]) til að gera útslagið með þá vitleysu.

Það er bara eitt, auglýsingin er sýnd alltof oft, sama hvað hún er sniðug og skemmtileg, þá er hún leiðigjörn eftir skamman tíma.

Bestu, skemmtilegustu, ódýrustu og minnst leiðigjörnu auglýsingarnar, sem hægt er að horfa á aftur og aftur - og skila sér sem söluauglýsingar - tel ég vera; THULE, FLÜGGER, ÓPAL, FETA, nokkrar mjólkurafurða-auglýsingar frá  MJÓLKURSAMSÖLUNNI, og svo örfáar aðrar sem ég man ekki í fljótu bragði.

Mér datt þetta sisona í hug.

Bless, Björn bóndi.


Þetta er ekki spurning um eitt ár lengur í lífinu, heldur hversu mikið líf í árunum!!

´

Það er ekki spurning um 1,8 milljónir til að lengja lífið um eitt ár.  Heldur aðallega að gera líf þeirra kvenna sem annars hefðu fengið leghálskrabbamein betra og með auknum gæðum.  Þetta er ekkert til að grínast með.

Eitt ár, til eða frá, skiptir ekki öllu máli, heldur heilsan og gæði heilsunnar.  Þess vegna er ekki spurning um að spara nokkrar utanlandsferðir fyrir þessa pótentáta sem eru við ríkis-. borgar- og sveitastjórnarvölinn.  Seljum helvítis bárujárnsruslið á Laugavegi 4-6 (rétt númer?) sem kostar milli 6-800 milljónir og kýlum á þetta!

Svo eru vinstrimenn að rífa kjaft að Ólafur Fr. Magnússon borgarstjóri fer ekki í ferðir til útlanda !! ?? !!  Heyr á endemi.  Hann sparar!  RÁÐAMENN!! takið Borgarstjóra Reykjavíkurborgar ykkur til fyrirmyndar og drekkið ykkar brennivín heima hjá ykkur, þið þurfið ekki að fara til útlanda til þess!!  (Ekki að Ólafur Fr. borgarstjórisé að drekka brennivín heima hjá sér - það var nú ekki meint þannig -)

Bless, Björn bóndi.

 


mbl.is Geta lifað aukaár fyrir 1,8 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kirkjan þolir ekki gagnrýni, en samt má prófa að.........

 

.......taka fyrir rannsóknarréttina, t.d., sérstaklega þann spænska t.a.m.

Og svo mætti taka Íslensku Ríkiskirkjuna frá upphafi með sína endalausu refsigleði, dæma menn til dauða, en áður en dauðarefsing (hálshögg) yrði framkvæmt, voru karlmenn og klipnir með glóandi töngum og útlimir margbrotnir til að gera kvölina sem mestam (konum var drekkt);

Ríksikirkjan íslenska sem var í raun stofnsett á Alþingi Íslendinga árið 1000 (skv., íslendingasögum), bannaði hrossakjötsát að viðlagðri refsingu, sem var bannfæring á hvern þann er lagði sér slíkt til munns, feður, mæður, börn og kornabörn.  Á hinum dimmu miðöldum ("Litlu Ísöld", svokallaðri) þegar stærstur hluti Íslendinga féll úr hor ("ófeiti" eins og það var kallað þá í annálum) óð fólk með hálfdauð börn sín úr hungri, yfir hrossahræin og máttu ekki nýta þau að viðlagðri bannfæringu ("bannfæring" var að komast ekki í Guðsríki eftir dauðdaga, heldur skyldi brenna í vitiseldum um eilífð alla, feður, mæður, börn og allir).  Hvar í Biblíunni, "Hinni Heilögu Ritningu" segir að ekki megi eta hrossakjöt.   - Einmitt! -  Þetta var geðþóttaákvörðun Íslensku Ríkiskirkjunnar, því í heiðni átu menn hrossakjöt, og þetta átti að skilja á milli heiðni og kristni! (tilvitnun: Vísindavefurinn).  Hross voru einu ferfætlingarnir sem gátu lifað úti í náttúrunni fyrir utan refi og hagamýs (minkar voru ekki komnir þá).  Af hrossunum var hægt að ná miklu af kjöti og innmat.  Það var ekki fyrr en á hallærisárunum 1775-1758 sem Finnur Jónsson þáverandi Skálholtsbiskup leyfði hrossakjötsát "í neyð" og svo kom að því að: "Kirkjustjórnarráðið í Kaupmannahöfn gaf út þá yfirlýsingu árið 1757 að hrossakjötsát í neyð væri ekki brot og því ekki refsivert."  (Tilvitnun: Vísindavefurinn.)  Það þurfti Dani til, eina ferðina enn, að koma vitinu fyrir íslenska kirkjunnar menn og aðra ráðamenn. 

Það eru örfá ár síðan að byskupinn yfir Ísland (Ólafur Skúlason) bannaði eitt sinn víðavangshlaup unglinga á sunnudegi, því það var á messutíma. (Heimild í lögum sem þá var beitt). 

Það er ekkert að því að gagnrýna kirkjuna, því kirkjan gagnrýnir aðra þindarlaust, og þeir sem gagnrýna mest, þola gagnrýni minnst.

Kirkjunnar menn og aðrir yfirmenn þjóðarinnar áttu ekki við "ófeiti" að stríða.  Þeir bara horfðu á fólkið í landinu þjást úr hungri og vosbúð.  Þar sannast hið fornkveðna: "Það er svo auðvelt að þola þjáningar annarra."

Bless, Björn bóndi.


mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munaðarlausa eiginkonu - eða - vera einhleypur.

´  

Ég hef í öll þessi ár verið að leita mér að munaðarlausri stúlku fyrir eiginkonu.  Það þýðir það, að ég þarf aldrei að sitja í andstyggilegum ættarboðum, hlusta á nöldrandi tengdamóður sem vill ráða öllu og þykjast vita allt, tengdapabba sem þykist þekkja tímana tvenna og vera því alvitur, eyða jólum, nýárskvöldum, páskum, hvítasunnum o.s.frv., o.s.frv., hjá ættingjum konunnar sem undantekningarlaust verða hundleiðinlegt pakk, fyrir það eitt að vera skyldmenni.  Það eru álög, ekki bara á Íslandi, heldur út um allan heim, hjá öllum þjóðflokkum. 

Svona eiginkonu er erfitt að finna eða ég hef bara verið óheppinn. 

Kveðja,

Björn bóndi.

´


mbl.is Karlar kjósa fremur einlífi en slæmt hjónaband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband