Hvenær þorir Alþingi að segja NBA að hypja sig úr Írak og Afganistan?

Þessi kerlingaraumingi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem starfar sem utanríkisráðherra Íslendinga lætur Condolessu Rice fjöldamorðingja og utanríkisráðherra BNA tala svo niður til sín vegna hvalveiðimála, að utanríkisráðherra Íslendinga lyppast niður og segist sjálf vera á móti hvalveiðum......... bara svona fyrir kurteisissakir.....!!   (Conda, við erum vinir, við erum alltaf sammála - hugsunarhátturinn.)

Svo þorir hún ekki að svara fullum hálsi að mótmæla fjöldamorðum NBA og taglhnýtinga þeirra, Bretum, Dönum og fleirri, þegar Condolessa Rice fer fögrum orðum  um eigin fjöldamorð í Írak og Afganistan og pyntingar í Guantanamo (Kúbu), Abu-Grahib (Írak) og Bagram (Afganistan) fangabúðunum og síðan í fangelsum leppríkja BNA út um allan heim, sem taka við föngum BNA til að pynta þá "löglega" í sínum ríkum. 

Hvar eru stóru orðin frá því þegar BNA & Co., réðust inn í Írak?  -  Nei!  Nú á að sleikja nokkra rassa og reyna að komast inn í Öryggisráð SÞ.  Hvað höfum við Íslendingar að gera þangað?  - Verandi taglhnýtingar Bandaríkjamanna og undirlægjur af verstu tegund eins og utanríkisráðherra Íslands er, stjórnmálamaður sem svíkur eigin málstað!!   - Svei!

Nú fór ég í fýlu.

Björn bóndi.

Og


mbl.is Bandaríkjaþing gagnrýnir hvalveiðar Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað kemur þetta hvalveiðum við?

Gummi (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 17:59

2 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Það kemur gagnrýni á hvalveiðar okkar að gera að þeir geta gagnrýnilaust af okkar hálfu framið fjöldamorð á mannfólki - Gummi minn.

Kv. Björn bóndi.

Sigurbjörn Friðriksson, 19.6.2008 kl. 18:07

3 Smámynd: Róbert Björnsson

Jahérna...ég vissi ekki að NBA væri komið með lið í írak og afganistan!  Þetta kallast sko "basketball without borders"!  

Róbert Björnsson, 19.6.2008 kl. 19:20

4 identicon

Þeir mega sem sé ekki gagnrýna okkur þar sem við höfum ekki gagnrýnt þá!! Já, þú ert mikill hugsuður Bjössi minn.

Gummi (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 20:35

5 Smámynd: Gísli Hjálmar

... útaf með dómarann og upp með sokkanna.

Gísli Hjálmar , 22.6.2008 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband