Færsluflokkur: Bloggar

Hið besta mál, og veitir ekki af!

Vonandi tekst þessu góða fólki að rétta orðstýr BNA við, eftir að G.W.Bush bandaríkjaforseti og hans kónar í núverandi ríkisstjórn eru búnir að eyðileggja órðstýrinn jafn mikið og raun ber vitni.

Kveðja, Björn bóndi.   Smile 


mbl.is Clinton verði kjölfestan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama gerist á Ítalíu ár hvert.......

.....þegar veiðitímabilið á villtum fuglum og hérum er opnað.  Venjulega eru um 5 drepnir (óvart) fyrstu vikuna.

 Kveðja, Björn bóndi  Smile


mbl.is Tveir skotnir til bana í leikfangaverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að "mynnast við" er gamall íslenskur siður.

Íslendingar hafa heilsast og kveðst með kossi frá alda öðli, Frakkar einnig og sérstaklega Rússar, Hvít-Rússar og fleiri og fleiri.  Orðið "mynnast" er skrifað með Ypsiloni, dregið af orðinu munnur.  Nú væri gaman að sjá íslensk yfirvöld apa þetta eftir Austurríkismönnunum

Kveðja, Björn bóndi.  Smile


mbl.is Allt kossaflens bannað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ef "auðmaðurinn" hefði verið framsóknarmaður t.d. frá VÍS?

Síðan hvenær er nafnorðið "auðmaður" komið í niðrandi merkingu nema hjá kommúnistunum í VG og Femínistunum?  Hversvegna gengur þessi framsóknarkerling ekki til liðs við VG til sætis við hlið Kolbrúnar Halldórsdóttur og hennar kóna?  Hvað ef þessi "auðmaður" hefði verið Finnur Ingólfsson "auðmaður" og fyrrverandi viðskiptaráðherra og forstjóri VÍS sem framsóknarmenn fengu gefins af eigin ríkisstjórnarflokki?

Kv., Björn bóndi.  Smile 


mbl.is Róbert Wessmann í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með gúrkusveigju á titrara???!!

Eru engar reglur á sveigju á titrurum?  Getur hvaða dóni sem er framleitt og selt titrara með ógeðslegri beygju og sveigju??  Svari nú femínasnafélagið!!!!

Kveðja, Björn bóndi.  Smile


mbl.is Aflétta banni við bognum gúrkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástkæra ylhýra málið......and all that jazz........

Hundurinn Gus er dáinn.  Nú kemur gamla pexið í mér eina ferðina enn.  Mbl.is blaðamennirnir kunna ekki íslenskuna sína frekar en fyrri daginn.

Fólk deyr, dýr drepast. 

Látið fólk eru lík, dauð dýr eru hræ. Fólk borðar (af borðum), snæðir, matast o.s.frv.

Dýr éta (úr jötu), fóðrast, bítur gras, kroppar o.s.frv.

Einu sinni sá ég frétt í Fréttablaðinu þegar það var nýbyrjað.   Þar ritaði blaðamaðurinn um "karlkyns kindurnar" því hann hafði aldrei verið í sveit og heyrt um hrúta.  Hvað skyldu svo karlyns beljurnar heita?

Það eru fleiri er Mbl.is blaðamenn vitleysingar.

Bless, Björn bóndi.Smile


mbl.is Ljótasti hundur í heimi dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru útleigðar frystigeymslur undir hrá matvæli á Reykjavíkursvæðinu? Veit nokkur?

Veit nokkur hvort eitthvað frystigeymslupláss undir smávarning eins og t.d., hrá matvæli svo sem einn eða tvo sagaða dilkaskrokka sé til á Reykjavíkursvæðinu?  Svona þjónusta var í Sænska Frystihúsinu heitna hér áður fyrr.

Vinsamlega láta vita!!!!!

Kveðja, Björn bóndi.  Smile


Hafnarborgin Szczecin heitir "Stettín" á Íslensku tungumáli (þessu ylhýra....).

En það er nú ekki nema von, þetta er jú Mogginn........

Kveðja, Björn bóndi  Smile


mbl.is Bannað að sóla sig ber að ofan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kyngjum hrokanum ..... !!!

Og segjum "JÁ TAKK!!!" við frændur okkar og vini.

Þegar fjarar út og félagarnir týna tölunni, þá standa klettarnir eftir!  Vinur í raun er sannur vinur.  Þannig eru Færeyingar!.

Kveðja, Björn bóndi.


mbl.is Færeyingar vilja lána Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennum öllum öðrum um - ekki okkur sjálfum....!

“Ég sem fór í banka og fékk gjaldeyris “körfulán” í Japönskum jenum, Evrum og Svissnenskum frönkum í bland. Ég keypti mér íbúð og rosalega flottan amerískan pallbíl því á var tollurinn á þeim svo “lágur”. Að vísu eyðir hann rúmlega 20 lítrum á hundraðið. Svo notaði ég restina til að fá mér sjnóvarpsgræjur með risa-flatskjá, sem er “must” á hverju heimili ens og ísskápur og frystikista er. Nú er ég að tapa öllu, því lánin hafa hækkað svo voða mikið að þau eru komin langt yfir það sem bíllinn, íbúðin og græjurnar kostuðu. Þetta er allt þessum helvítis glæpamönnum sem voru með útrásina í gangi og tóku sér himinhá laun í engu samhengi við raunveruleikann. Aldrei hefði ég gert svoleiðis” Svona sögur og álíka heyri ég oft hjá viðskiptavinum mínum.

Í uppeldinu var mér kennt að ef ég kæmi mér í vandræði, þá væri það mér sjálfum að kenna.  Ef ég drekk brennivín og verð fullur og vitlaus, síðan timbraður og í fráhvörfum daginn eftir, þá er það ekki eftirfarandi að kenna; 1. Barþjóninum sem seldi mér brennivínið. 2. Framleiðendum bjórsins og brennivínsins sem ég drakk. 3. Vinnuveitandanum sem greiddi mér launin sem ég notaði til að kaupa mér brennivínið. 4. Stelpunni sem mig langaði til að ganga í augun á en þorði ekki ófullur. 5. Hinir á barnum sem voru við drykkju og ég tók til fyrirmyndar. 6. Mömmu minni sem varaði mig ekki við brennivínsdrykkju, því hún hafði aldrei smakkað vín á ævinni. 7. ….svo allir hinir……o.s.frv. Ég valdi að drekka brennivínið sjálfur. 

Útrásarvíkingarnir, Björgólfarnir sem fluttu til útlanda afdankaða bjórverksmiðju frá Akureyri og fluttu til Rússlands, seldu hana og keyptu Landsbankann, Atlanta og fleira og fleira, Bónus-, Hagkaups- og Baugshetjurnar, Íslandsbankahetjurnar (sem síðar varð Glitnir), Kaupþingshetjurnar, FL-Group hetjurnar, Eimskiphetjurnar, o.s.frv., o.s.frv., og græddu milljarða sem var upphafið á ennþá meiri og betri frægðarferli, allir vildu þekkja þá, láta taka mynd af sér með þeim, mæta í veislurnar þeirra. Allir vildu “Lilju” kveðið hafa.

Feðgarnir Jóhannes Jónsson kenndur við “Bónus” og Jón Ásgeir kenndur við “Baug” sem eru sekir um að reka lágvöruverslanir sem hafa lækkað verð nauðsynjavöru með slíkum einsdæmum, að öll verk verkalýðsfélaga hafa ekki aukið kaupmátt í líkingu við þessi verk frá upphafi, að verkalýðsfélögunum ólöstuðum, því þau hafa komið ýmsu nauðsynlegu í verk, svo sem vökulögin o.fl., o.fl. Og… verkalýðsfélögin og Neytendasamtökin / Neytendastofa hata Bónus og Hagkaup samsteypuna mest!

Síðan ríður yfir holskefla ótíðinda frá umheiminum sem eru efnahagslegar hamfarir og Ísland verður eitt fyrst allra ríkja fyrir barðinu. Þá snýst við dæmið og núna skríða undan steinum úrtölumenn og neikvæðissinnar og segja: “I tod you so!” (Ég sagði að þetta myndi gerast!). T.d., Ástþór Magnússon fyrrverandi forsetaframbjóðandi segir í heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu nú um helgina að hann hafi sagt fyrir um þetta fyrir 13 árum síðan!! Flestir Vinstri Grænir og Femínistarnir segjast hafa séð þetta fyrir!! Fíflið hann Egill Helgason í “Silfri Egils” leitar nú logandi ljósi að einhverjum til að hengja. Og halda ekki vatni yfir gleði og tillhlökkun yfir því hvernig fór.

Hvað ef holskeflan efnahagslega hefði ekki riðið yfir? Þá væri allt í himna lagi og “business as usual”. Og enginn segði neitt nema e.t.v.: “Áfram útrás, áfram útrás!”

“Army of evil forces can only get victory in battle when good men stand by and do nothing.” Þessi orð eiga við forsvarsmenn íslenska ríkisins þegar þeir standa hjá aðgerðarlausir þegar forsætisráðhenna Stóra Bretlands, aðalmiðstöðvar fjármálaflæðis hins vestræna heims, kemur stærsta fyrirtæki Íslands, Kaupþingi á hausinn, með alhæfingum um að Ísland allt sé það sem kom fyrir hjá Landsbankanum einum í Bretlandi.  Þarna standa þessir aumingjar, forsætisráðhennann, utanríkisráðherrann, fjármálaráðherrann og mótmæla ekki umsvifalaust með þeim hætti sem hægt er, hjá Nató og Evrópubandalaginu.  Þarna voru Bretar að hefna sín, sætum hefndum, eftir ófarirnar í Þorskastríðunum á áttunda áratug síðustu aldar.  Við skulum ekki gleyma því að það voru þessir andskotar sem gerðu hernaðarinnrás inn í Ísland 10. maí, 1940 og tóku Ísland hernámi, nákvæmlega eins og Nazistar Þýskalands gerðu t.d., við Noreg og allir eru sammála um að hefði verið hinn versti glæpur.

Fyrirgefið mér tilvist mína og skoðanir.

Kveðja, Björn bóndi.


mbl.is Krónan stærsta vandamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband