Þegar ég var 23ja og yngri.

Þá var Þórsmörkin í algleymingi.  Þangað fórum við félagarnir, vöknuðum á morgnana í ælunni, stundum stóð hausinn uppúr svefnpokanum og stundum tærnar. Stundum komst maður ekki í svefnpokann og vaknaði þá undir eða ofaná svefnpokanum, eða bakvið tjald, ef maður þá fann það.  Við kunnum ekkert með áfengi að fara sem var tíðarandinn.  Bjórinn var algerlega bannaður, þessi stórhættulegi drykkur, við fengum bara vodka, brennivín, gin eða sjénever o.s.frv. 

Hegðanin var líkt því sem sést á myndbandinu hans Magnúsar Þórs frá Írskum dögum.  Æpt, gargað, öskrað og gólað.  Ekki kveitur varðeldur í vinahópi, né sungnir ættjarðarsöngvar, skátasöngvar og María, Mária o. s.frv., nei bara gólað og slegist.

Þegar svo var tekið saman og farið heim, þá voru þeir fáir sem engir, sem þrifu eftir sig og tóku draslið sitt og ruslið saman, hvað þá að koma því í burt.

"Einhverstaðar verða vondir að vera" sagði þursinn í Drangey þegar biskupinn var að blessa bergið til að losa það við óvættina úr berginu.

Ég tel það ekki til mannréttindabrota, né brota á jafnræðisreglunni að ætlast til að ungt og hraust fólk fái ekki að hrella samborgara sína og fjöldkyldufólk á fjölskylduhátíðum.  Ungt, hraust og heilbrigt fólk sem vill fara á fyllirí, sem oft ber nauðsyn til að gera, til að sletta ærlega úr klaufunum á þessum uppvaxtarárum, sama þótt laganna bókstafur segir að við séum fullorðin 18 ára, þá erum við það ekki í félagslegum þroska - það veit ég - á að fá að gera það allt > í vernduðu umhverfi.  Við erum afkomendur Víkinga og Íra, sem er ákaflega eldfim blanda eins og allir þekkja. Því verður ekki breytt héðan af.  Það held ég að sé hugmynd að vera með tjaldsvæði fjarri mannabyggðum, með salernisaðstæðum og sturtuklefum, allt innan girðingar, hljómsveitarpöllum og danspöllum o.s.frv. Síðan yrði aðgangseyrir einhverjar krónur (t.d., fáein þúsund), svæðið opið frá fimmtudagsmorgni til þriðjudagskvölds og aðkeyptir verktakar (t.d., (alls ekki lögreglan!!!) Björgunarsveitarmenn eða/og Sniglarnir sem tókst svo vel upp hjá Húnaveri hér um árið) sjá um eftirlit, fíkniefnaleit (horfa fram hjá bjór og brennsa) og síðan að taka til á svæðinu eftir þessa löngu helgi.  AÐGANGSEYRIRINN á að sjá um að greiða þessum verktökum góð laun fyrir vel unnin störf.

En einhversstaðar verður kynslóðin, sem mun taka við af okkur, að fá að hlaupa af sér hornin.

Kveðja, Björn bóndi.

mbl.is Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Reykjavík þá að ákveða fyrir Akranes?

"[......] Það er trú okkar að þó svo sömu flokkar stýri málum í Reykjavík og á Akranesi, þá verði önnur afstaða tekin til málsins hér í borg," segir í tilkynningunni, sem Björk Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar, skrifar undir."

Ætlar borgarstjórnarmeirihlutinn að taka ákvarðanir fyrir bæjarstjórnarmeirihlutann á Akranesi varðandi móttöku á flóttamönnum, að Akurnesingum forspurðum?  Af því að sömu flokkar stýra málum í Reykjavík og Akranesi? 

Heyr á endemi!!

Kær kveðja, Björn bóndi.

mbl.is Flóttafólk verði boðið velkomið til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltafsömu stórfréttirnar!!

Það er einsog maður hafi einhverntíma heyrt þessa frétt áður!?!  Er þetta endurtekið efni?

Kveðja, Björn bóndi.

mbl.is Þrír ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullorðnir stríða "blondínum" þ.e., mér.

Aldrei er það kallað RASISMI þegar verið er að gera grín af okkur BLONDÍNUNUM þó við getum ekki tuggið tyggigúmmí og klórað okkur í höfðinu samtímis og erum dálítið lausgyrt.  Og það eru sko ekki börnin sem gera það heldur ljótir og öfundsjúkir einstaklingar.  Gerið bara grín af honum Gilzenegger beint framan í opið geðið á honum..  Þá fáið þið sko að finna fyrir því.

Það er ekkert að því að vera BLOND AND BEAUTIFUL eins og ég og það á ekkert að gera grín að því.

Og það er ekki einu sinni minnst á okkur í umræðunni!!!  Skamm!!!!

Kveðja Börn bónd, hinn fagri.

mbl.is Bannað að stríða rauðhærðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagan endurtekur sig - Munið HAFSKIPSMÁLIÐ!!

Þetta minnir mig óneitanlega á upphaf Hafskipsmálsins þegar forstjórar Hafskipa, Björgólfur Guðmundsson og Ragnar Kjartansson voru sóttir heim til sín og handteknir og settir í járn fyrir allar aldir, þ.e.a.s., um kl 05:00 að morgni.  Og hverjir voru mættir ásamt lögreglunni? nema; blaðamenn og ljósmyndarar Morgunblaðsins (þáverandi ritstjóri Matthías Johannessen faðir núverandi Ríkislögreglustjóra) og fréttamenn og myndbandstökumenn RÚV (Ríkissjónvarpsins).  Fréttamenn og myndatökumenn annarra fjölmiðla voru ekki boðaðir á þennan "einkafund" Lögreglu, MBL og RÚV. 

Forstjórar Hafskipa þeir Björgólfur og Ragnar voru leiddir út í lögreglubíla fyrir framan ljósmyndar og kmikmyndatökumenn og niðurlægingin var algjör.  Þessar fréttir með myndum komu svo í kvöldfréttum RÚV þá um kvöldið og Morgunblaðinu daginn eftir með myndum og ýtarlegum frásögnum.  Stuttu síðar skipti "KOLKRABBINN" (Eimskip, þáv., formaður Halldór Jónsson, kallaður formaður Íslands og fleiri) eignum Hafskipa sín á milli.  Hafskip hafði verið óþægilegur ljár í þúfu Kolkrabbans, flokkseigendur Sjálfstæðisflokksins.

Síðar kom í ljós eftir langvarandi málaferli að óþarfi hefði verið að gera Hafskip gjaldþrota, því félagið átti fyrir skuldum. 

BAUGSMÁLIÐ er bara endurtekning á því sem hefur áður gerst.  Þessir menn hjá Ríkisstjórn Íslands þegar Sjálfstæðisflokkurinn er í forsæti, Morgunblaðinu hvort sem það voru Matthías Johannessen eða Styrmir Gunnarsson sem ritstjórar og RÚV vilja ekki og geta ekki lært af þessu, því þeir eru blindaðir af valdhroka.

Kær kveðja, Björn bóndi.

mbl.is Ríkislögreglustjóri segir DV fara með ósannindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagan endurtekur sig - munið HAFSKIPSMÁLIÐ!

mbl.is Fréttastofa Sjónvarps fer fram á leiðréttingu frá DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétti staðurinn.

Nú get ég stutt mótmæli vörubílstjóranna.  Þarna er rétti staðurinn til að mótmæla.  Ekki að mótmæla á þjóðbrautum og brjóta á samborgurum sem hafa sínum hnöppum að hneppa.

Kær kveðja, Björn bóndi.

mbl.is Mótmælunum hvergi nærri lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stoð undir kenningu.

Í kjölfarið af upplýsingum um meðferð fanga í Guantanamo fangelsinu á Kúbu, fangelsi sem BNA menn eiga, svo og Abu-Grahíb og fleisum fangelsum í Írak, að ógleymdum nokkrum fangelsum í Afganistan sem ég man ekki nöfnin á, þá komu fram kenningar um að BNA menn (og í sumum tilfellum Bretar og jafnvel Danir!) væru að framleiða tilvonandi Al-Kaída meðlimi og sjálfvígsmenn sem væru af eðlilegum ástæðum með eld í æðum af hatri til kvalara sinna.

Er einhver hissa? 

Kveðja, Björn bóndi.

mbl.is Fyrrum fangi í Guantanamo framdi sjálfsvígsárás í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hví eru þessir andskotans krakkar að valda landlækni þessum kvíða!

Að horfa á og hlusta á þetta myndband, þá gerir maður sér grein fyrir því hvernig þessi krakkaskríll sem lætur gata á sér húðina (þótt það sé alveg löglegt að sögn landlæknis), og valda fyrir honum svefnleysi á nóttunni, hann getur ekki sofið.  Hann getur ekki unnið á daginn fyrir áhyggjum og starfsfólk embættisins virðist vera hágrátandi í kór af áhyggjum einum saman.  Þetta er sá boðskapur sem við fáum úr þessu viðtali við fulltrúa Landlæknisembættisins í þessu myndbandi.

Hvers vegna er þessi krakkaskríll að fara svona með aumingja Landlæknisembættið?

Kveðja, Björn bóndi.

mbl.is Húðgötun veldur áhyggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beið aftöku í 20 ár.

Þessir hræsnarar í BNA sem eru að berjast fyrir mannréttindum út um allan heim, nema heima hjá sjálfum sér.  Að vera að tuða um það í mörg ár hvernið á að drepa manninn?  Láta hinn dæmda bíða milli vonar og ÓTTA í 20 ár.  Rafmagnsstóllinn var þannig að hinir dauðadæmdu voru steiktir í stólnum og tók oft nokkrar mínútur í sumum tilfellum að murka líftóruna, með ólýsanlegum kvölum, úr þeim áður en yfir lauk. Ég er algjörlega á móti dauðadómum. - En, ef dauðadómur skal það vera, þá eru arabar með hálshögg og kínverjar með skot í hnakkann það miskunnsamasta í svona hryllingi sem þekkist.  Tekur af í hvelli. 

Kær kveðja, Björn bóndi.

mbl.is Maður tekinn af lífi í Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband