Fjölskylduharmleikir, Jón eða séra Jón.

Þetta er skelfilegt að frétta ofan á allt sem á undan er gengið.  Ég tek hattinn ofan fyrir fjölmiðlum að birta hvorki nafn né ljósmyndir af þessum ólánsmanni sem hefur orðið hefur þessum ásökunum, á meðan rannsókn fer fram.  Hér á ég ekki við mannorðsmorðingjana hjá DV.  Þeir munu sýna sitt rétta andlit bráðlega.  Það er þeirra háttur á málunum.  Helst að hinn grunaði fremji sjálfsmorð, svo DV starfsfólk geti skálað í kampavíni fyrir "vel heppnaðri nafnbirtingu".  Ég vona að hinn grunaði sé ekki sekur og allt sé einn stór misskilningur o.s.frv.

Hinsvegar, þá er ekki sama hvort um Jón eða séra Jón sé að ræða.  Mér svíður það að ljósmyndir, nafn hins grunaða og nöfn sumra ættinga (fyrrverandi eiginkonu) hafi verið talin upp eins og var gert í fjölmiðlum var gert í gær.

Hafa fjölmiðlar (aðrir en DV líklega) séð að sér, hafa þeir fengið ákúrur, eða er hatur einstakra frétta- og blaðamanna gegn prestastéttinni eða gegn þessum eina presti svona takmarkalaust og heiftúðugt?

Kveðja, Björn bóndi.


mbl.is Grunaður um kynferðisbrot gagnvart 5 börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afar nauðsynleg rannsókn - þjóðþrifamál.

 

Ástæðan fyrir því að lögreglan er að rannsaka þetta grafalverlega mál, er að þeir hafa haft svo lítið fyrir stafni, að þeim leiðist í vinnunni.  Þar að auki átti að fækka í lögreglunni, svo þeir þurfa að sýna hvað þeir hafa mikið að gera í málum sem eru mjög aðkallandi.

Ég bíð spenntur eftir að frétta um niðurstöður þessa stóra máls og finnst, eins og öðrum femínistum að þessar grunuðu konur fái þyngstu refsingu. Hvort sem vændi sé löglegt eða ekki löglegt.

Ef á hinn bóginn að það komi í ljós að þær hafi ekki stundað þetta vændi, þá finnst mér að lögreglan geti allavega sannað að þær hefðu stundað vændi, ef þeim hefði dottið það í hug, eða fengið tækifæri til þess!  Hengum þær á hæsta gálga!

Kveðja, (vér femínistar,) Björn bóndi.


mbl.is Grunur um vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögregluhundur í einkennisbúningi.

Hvað er svona merkilegt við það?
mbl.is Mondex til í allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindi = JÁ....Kvenréttindi = NEI.

Mér finnst skjóta skökku við þegar þessir hræsnarar, vesturlönd samanber NBA og einnig samkundan SÞ sem þykjast vera að berjast fyrir lýðræði og mannréttindum og gegn mannréttindabrotum í hinum ýmsu löndum eins og Kína, Tíbet, Suður-Afríku áður fyrr, Afganistan, Malasíu, Myanmar (áður Búrma), mörgum Afríkuríkjum o.fl.  Það eru notuð alþjóðleg viðskiptabönn á mörg þessarra landa.  Svo segir sagan okkur, að þegar "lýðræðið er fengið" og skálað er fyrir því í kampavíni,  Þá gleymist, að þetta lýðræði er einungis fyrir karlpeninginn.  Konurnar búa ennþá við sömu kúgunina, eins og t.d., í Saudí-Arabíu sem var undir verndarvæng NBA í tugi ára sem voru þá á meðan að skammast út í Kína fyrir mannréttindabrot (á karlmönnum).  Þetta er óskemmtilegur tvískinnungur.  Amerískir, íslenskir o.fl., femínistar gera ekkert til að berjast fyrir réttindum og kúgun kvenna í þessum "nýfrjálsu löndum".

Íslenskir femínistar berjast fyrir frekari kvenréttindum (forréttindum) með oddi og egg hér, þar sem mesta kvenfrelsi er í öllum heiminum.  Þær lyfta ekki fingri til að vekja máls á þessari kvenna kúgun sem á sér stað í þessum nýfrjálsu löndum. 

Þær eru eins og fyllibyttan sem týndi lyklunum í drullupolli einhversstaðar á leiðinn heim af barnum og fór heim til að leita að lyklunum "af því það væri svo hlýrra og bjartara hér heima heldur en úti við drullupollinn og svo er líka rigning."

Já, nú er honum bleik mínum brugðið.

Kveðja, Björn bóndi.


mbl.is Konum í Malasíu verði meinað að fara einar til útlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dr. Hannibal "the Cannibal" Lecter var meiri mannvinur....

Úr bók Stephen Kings um gáfaða raðmorðingjann og mannætuna Dr. Hannibal "the Cannibal"Lecter, sem við sáum í kvikmynd m.a., í sjónvarpinu, tel ég að ef sá hefði verið raunverulega lifandi, þá hefði hann verið miskunnsamari en þessi Josef Frizl.  Hannibal leyfði fórnarlömbum sínum þó að deyja.

Kveðja, Björn bóndi.


mbl.is Segir Fritzl ósakhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varist DÓMSTÓL GÖTUNNAR!!!

Kannski hefur presturinn gert þetta og kannski ekki.  Málið er í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu Ríkisins. Allir eru saklausir þar til þeir fá réttláta dómsmeðferð og þeir hafa verið dæmdir sekir af réttum dómstólum.  Allir eiga réttá að njóta vafans þar til dómur fellur.      Ekki dómstóli götunnar sem  - því miður, margt fólk er nú byrjað að gera -, virðist gera sig sekt um að að dæma fyrirfram (fordæma) og hafa tekið sjálfskipuð hásæti hjá dómstóli götunnar.    Svona múgsefjun er mjög hættuleg lýðræði og réttarkerfi.  Ef svo séra Gunnar verður sýknaður, þá er tilhneyging hjá dómstóli götunnar að segja eins og Helgarpósturinn gamli eða DV: "Það getur verið að hann hafi ekki gert þetta, en það er búið að sanna að hann hefði gert það ef honum hefði dottið það í hug." Ekki fara að haga ykkur eins og öfga femínistar.

Kveðja, Björn bóndi.

 
mbl.is Prestur í leyfi frá störfum vegna kæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varist DÓMSTÓL GÖTUNNAR - "Prestur ákærður fyrir kynferðislegt........"

Kannski hefur presturinn gert þetta og kannski ekki.  Málið er í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu Ríkisins. Allir eru saklausir þar til þeir fá réttláta dómsmeðferð og þeir hafa verið dæmdir sekir af réttum dómstólum.     Ekki dómstóli götunnar sem  - því miður, margt fólk eruð nú að gera -, virðist gera sig sekt um að að dæma fyrirfram og hafa tekið sjálfskipuð hásæti hjá dómstóli götunnar.    Svona múgsefjun er mjög hættuleg lýðræði og réttarkerfi.  Ef svo séra Gunnar verður sýknaður, þá er tilhneyging hjá dómstóli götunnar að segja eins og Helgarpósturinn gamli eða DV: "Það getur verið að hann hafi ekki gert þetta, en það er búið að sanna að hann hefði gert það ef honum hefði dottið það í hug." Ekki fara að haga ykkur eins og Öfga Femínistar, Helgarpósturinn eða DV.Kveðja, Björn bóndi.

Óþægilegar minningar og staðreyndir - landbúnaður að leggjast af?

Neytendastofa, kratasamsullið (Samfylkingin) og Vinstri Grænir, vilja fórna matvælaframleiðslu á Íslandi fyrir skammtímasjónarmið sem er að flytja inn ódýrari matvæli sem eru niðurgreidd af ríkisstjórnum,spákaupmönnum og áhættu-og stórfjárfestum, en sem við getum framleitt vegna hnattlegu Íslands og veðráttu, þ.e.a.s., mólk og mjólkurafurðir, kjöt o.s.frv., o.s.frv. sem eru ekki niðurgreidd á Íslandi.  Bara til að spara nokkrar krónur í dag og "nokkra daga" líklega í nokkra tugi ára,  en þó líklega mikið fyrr.  Engan fórnarkostnað til að halda áfram matvælaframleiðslu.  Komandi kynslóðir skulu erfa vandann.  Þá leggst bændastéttin og aðrir matvælaframleiðendur mestmegnis af. Þegar svo matvara hækkar erlendis vegna skorts á matvælum, eftir nokkra tugi ára, þá  er landbúnaðurinn búinn að vera á heljarþrömm og lagður af.  Þá þarf að byrja matvælaframleiðslu uppá nýtt og það er erfiðara en sem tárum tekur. Þessir bjánar vilja ekki líta til framtíðar í matvælamálum, bara spara í dag af pólitískum ástæðum; “Skammtíma lýðhylli” – og- “Sjáið þið hvað við gerðum, VIÐ lækkuðum matarverð fyrir öreigana.”Duldar staðreyndir:Matvaran frá þeim löndum sem við ætlum að flytja inn "ódýra" matvöru frá, er niðurgreidd af stjórnum, spákaupmönnum og stórfjárfestum hvers lands. Þeir hugsa mörg ár fram í tímann sem íslenskir komma- og aðrir vinstriflokkar og Neytendastofa gera ekki.  Þegar þeir eru síðan búnir að drepa niður framleiðslu annarra landa með niðurgreiðslum, hvað er gert þá?  Þá er niðurgreiðslum hætt því samkeppnin hefur verið niðurdrepin.  Verðið hækkað og gróðaveisla byrjar hjá erlendum matvöruframleiðendum. SÍS gamla sem réði kaupfélögunum gerðu þetta í smábæjum úti á landi.  Þeir fýruðu niður verslunarverðinu þangað til að aðrar verslanir í smábæjunum lögðu upp laupana og lokuðu.  Þá fýruðu kaupfélögin verðinu upp úr öllu valdi. SÍS reyndi þetta í Reykjavík eftir að KRON (Kaupfélag Reykjavíkur Og Nágrennis) fóru á hausinn.  Þeir opnuðu stórmarkað í Holtagörðum undir nafninu MIKLIGARÐUR.  Þar reyndu þeir að brjóta niður aðrar smærri stórverslanir með undirboðum, þannig að þeir töpuðu um milljón á dag þá, sem er u.þ.b. 2-4 milljónirá núvirði.  Síðan fóru þeir á hausinn einsog frægt - guði sé lof.  Reykvískir verslunarmenn, bæði heildsalar og smásalar sáu við þeim.  Þeir þekktu söguna og aðferðirnar, höfðu lært þeirra aðferðir á landsbyggðinni.

Neytendasamtökin og vinstra pakkið vita söguna og þekkja aðferðirnar, en neita að muna eftir svona óþægilegum staðreyndum,vegna pólitískra skammtíma hagsmuna.


mbl.is Segir matvælakreppuna mannréttindakreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá fá G.W.Bush, Dick Cheeney og Donald Rumsfeld Friðarverðlaun Nóbels!!!

Stefán Pálsson er þekktur fyrir kímni og grín og hann er eins og nútíma "Baldur & Konni", töframaðurinn sem dró dúfur upp úr hattinum sínum, frasmdi spilagaldra og fleira og var búktalarinn með dúkkuna, fyrir um 40-55 árum síðan.  Bara Stefán stendur einn á sviðinu og skemmtir fólki.  Það eina er, eins og með galdrana hans Baldurs og "Baldur & Konna", að mörg yngstu og minnstu börnin trúðu að galdrarnir væru sannir og að dúkkan Konni væri í alvöru að tala og væri raunverulegur sonur Baldurs.  Jafnvel sum stærri og eldri börn trúðu þessu.

Litlu sætu og trúgjörnu börn nútímans sem trúa á "töframanninn, búktalarann og skemmtarann" Stefán Pálsson að hann sé trúr og sannur er kommaliðið úr VG ásamt handfylli af nokkrum öðrum,svo sem öfgafullum femínistum.  Það er í sjálfu sér hugljúft að sjá lítil og saklaus börn gleðjast.  Jafnvel þau stærri.  Mig langar til að gefa þeim "candý-floss" og rjómaís að sleikja og njóta þess að sjá þessi elsku börn lifa í vökudraumi um hetjuna sína. 

Að vilja Stefán Pálsson í stöðu forstjórastarf Varnamálastofu er jafn fyndið og fráleitt og að mæla með að þrenningin; Georg W. Bush forseti BNA, Dick Cheeney varaforseti BNA og Donald Rumsfeld fyrrverandi stríðs- og innrásarmálaráðherra BNA, sem eru/voru aðalfyrirliðar stærstu hryðjuverkasamtaka heimsins, deildu með sér Friðarverðlaunum Nóbels. 


mbl.is Formaður SHA sækir um forstjórastarf Varnarmálastofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var landhreinsun hjá gamla manninum.

Sá sem ætlar að bera gamalmenni á tíræðisaldri út á götuna og gaddinn án þess að láta félagsmálayfirvöld leysa málið, á að fá fría ferð yfir móðuna miklu.

En þeir Í NBA eru þekkti fyrir skepnuskap og miskunnarleysi, svo þeir munu dæma hann í lífstíðar fangelsi, svo hann situr þá inni 2-4ár í mesta lagi.  Hinsvegar, ef þeir dæma hann til dauða, þá tekur alltaf nokkur ár þar til að dóminum verður fullnægt, því þannig er réttarkerfið í BNA vegna sífelldra áfríana.  Þannig eru lög í BNA um aftökur; þá er allt gert til þess að sá dauðadæmdi sé við hestaheilsu þegar kemur að aftöku.  Þannig verður hann mörgum árum lengur í fangelsinu, því þeir gera allt til þess að halda honum lifandi þar til hann verður tekinn af lífi.


mbl.is Morðingi á tíræðisaldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband