1.5.2008 | 16:52
"Vændi","ekki vændi" eða "frjálsar ástir" = Spurningar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.5.2008 | 14:02
Margur heldur mig sig..........
Ísraelar og vinir þeirra hafa eflt al-Kaída og Talibana vegna framkomu sinnar í mið-austurlöndum. Al-Kaída og Talíbönum vex fiskur um hrygg þráttfyrir fjöldamorð Ísraela og Bandaríkjamanna á þeim. Framkoma Ísraela við Palestínumenn er verri en Nazista (Hitlers), því Ísraelsmenn fremja glæpi sína fyrir opnum tjöldum - og skammast sín ekkert, hafa ekkert lært af reynslu sinni í helförinni á árum seinni heimstyrjaldarinnar.
Bandaríkjamenn með yfirgangi sínum í mið-austurlöndum í gegnum síðustu áratugina, svo sem með innrásina í Afganistan með SÞ í eftirdragi og innrásina í Írak með fölsuðum "sönnunum" um stuðning Afgana við Al-Kaída, um kjarnorku- og efnavopnaframleiðslu Íraka. Síðan stanslaus hryðjuverk Bandaríkjamanna í þessum löndum og taglhnýtinga þeirra og síðan pyntingar í Abu Grahib, Quantanamo og öðrum fangelsum, með blessun margra þjóða, þar með taldra íslenskra stjórnvalda. Að ógleymdum hótunum Bandaríkjamanna um innrás í Íran og jafnvel Sýrland.
Þannig eiga íslensk stjórnvöld hlut að máli. Við styðjum stærstu hryðjuverkasamtök heims, Bandaríkin, sem styðja næst stærstu hryðjuverkasamtök heims, Ísrael, með vopnum, peningum og stuðningi innan Öryggisráðs Sameinuðuþjóðanna með neitunarvaldinu svo Ísraelar geti komið sínu fram í Palestínu.
Svo skilur Kaninn ekkert af hverju þeir eru svo hataðir af múslimskum þjóðum, og að höfuðóvinum Bandaríkjamanna, Al-Kaída og Talibönum vex fiskur um hrygg.
![]() |
Peres líkir Ahmadinejad við Hitler |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2008 | 20:36
Hvers vegna eflast Al-Kaída? Vegna þess........
Vegna þess að Bandaríkjamenn með yfirgangi sínum í mið-austurlöndum í gegnum síðustu áratugina, svo sem með innrásina í Afganistan með SÞ í eftirdragi og innrásina í Írak með fölsuðum "sönnunum" um stuðning Afgana við Al-Kaída, um kjarnorku- og efnavopnaframleiðslu Íraka. Síðan stanslaus hryðjuverk Bandaríkjamanna í þessum löndum og taglhnýtinga þeirra og síðan pyntingar í Abu Grahib, Quantanamo og öðrum fangelsum, með blessun margra þjóða, þar með taldra íslenskra stjórnvalda. Að ógleymdum hótunum Bandaríkjamanna um innrás í Íran og jafnvel Sýrland.
Þannig eiga íslensk stjórnvöld hlut að máli. Við styðjum stærstu hryðjuverkasamtök heims, Bandaríkin, sem styðja næst stærstu hryðjuverkasamtök heims, Ísrael, með vopnum, peningum og stuðningi innan Öryggisráðs Sameinuðuþjóðanna með neitunarvaldinu svo Ísraelar geti komið sínu fram í Palestínu.
Svo skilur Kaninn ekkert af hverju þeir eru svo hataðir af múslimskum þjóðum, og að höfuðóvinum Bandaríkjamanna, Al-Kaída og Talibönum vex fiskur um hrygg.
![]() |
Al-Qaida samtökin að eflast samkvæmt nýrri skýrslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2008 | 18:58
Hýða þá opinberlega!!
![]() |
Mikið tjón í sinubrunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2008 | 15:46
Einkaþota / leiguþota.
Upphlaupið vegna flugferða alþingismanna og ráðherra er komið í hreina vitleysu.
Einkaþota er það sem Jón Ásgeir, Björgólfur Thor og fleiri eiga. Leiguþota er rekin af leiguflugfélagi eins og leigubílar/bílaleigubílar og þeir eru ekki einkabílar. Áætlunarvélar líkt og strætó eru ágætar svo langt sem það nær, en stundum er gott að taka leigubíl til hagræðis, þegar mikið liggur við, og eru eðlilega eitthvað dýrari.
Það er því ekkert að því að taka leiguflugvél, leigubíl eða bílaleigubíl þegar mikið liggur við. Hættið svo þessu nöldri niðrá Alþingi. Þið hafið nóg annað að gera.
![]() |
Alger undantekning að nota einkaþotur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2008 | 16:17
Múgsefjun í kjölfar lögbrota vörubílstjóra.
Blessuð börnin sem eru annaðhvort nýbúin að fá kosningarétt eða eru rétt að fá hann, eru öll orðin sakhæf (15 ára aldurinn), þurfa að læra að þau þurfa að bera ábyrgð á gjörðum sínum.
Þetta er ekkert nema múgsefjun sem ég sá árið 1968 í París/Frakklandi í stúdentauppreisninni. Þar voru ungmennin að kasta grjóti í lögreglu og verslanagluggarúður - voða gaman. Því meiri usla sem þeim fannst þau vera að gera og komast upp með hann, því meira gaman.
Ég stend 100% með lögreglunni í því að sinna skyldustörfum sínum.
![]() |
Lögregla hótar handtökum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2008 | 21:27
Saklausir vörubílstjórar.
Tókuð þið eftir hvatningarhrópum vörubílstjóranna sem voru staddir á planinu til árásarmannsins í upphafi árásarinnar þegar lögreglumaðurinn var barinn? Það mætti endurtaka sýningu upptökunnar og hafa hljóðið þá aðeins hærra! Ég mana sjónvarpsstöðina sem á myndbandið að gera það.
Ætli að Lára Ómarsdóttir hjá Stöð 2 hafi átt einhvern þátt í árásinni og hvatningarhrópunum? Neeeei. Hún segir að hún hafi bara verið að grínast varðandi eggjakastið. Það gerir jú fólk í þessari stöðu á svona stundum. Kannski er hún bara að "segja satt" eins og Sturla þegar hún ber þetta af sér? Þar hafið góðan stuðningsmann.
![]() |
Gáfu ekki lagalegar skýringar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2008 | 20:20
Voru hvatningarhróp til árásarmannsins?!?
"Guðmundur Fylkisson, bróðir árásarmannsins, er ósáttur við að atvinnubílstjórar segist ekki kannast við bílstjórann þar sem hann sé einn þriggja nafngreindra talsmanna hópsins í fjölmiðlum. Eða eins og Sturla sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 þá var um vegfarenda að ræða," segir Guðmundur í samtali við mbl.is"
Heyrði ég rangt þegar ég sá myndbandið í fréttunum?
Voru hvatningarhróp til árásarmannsins frá vörubílstjórunum sem staddir voru á geymslusvæðinu? Ég heyrði ekki betur, en það hefur ekkert verið fjallað frekar um það!
Vill einhver leiðrétta mig ef ég hef rangt fyrir mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2008 | 19:35
Nú er slæmt fyrir Sturlu að geta ekki falið sig bakvið nafnleynd.
"Ekki benda á mig sagði Sturla, því þá var ég að æfa bílstjórakórinn".
![]() |
Sturla: Ekki á okkar ábyrgð" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2008 | 19:28
Hver er líðan lögreglumannsins?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Feministaþvælan þarfnast útskýringa.
Hver er munurinn á "vændi" og "ekki vændi" (þ.e., "frjálsum ástum")? Er "vændi" aðeins ef greitt er fyrir næturgreiða með; reiðufé? Er "ekki vændi" (þ.e., "frjálsar ástir) ef greitt er fyrir næturgreiða með ýmist; áfengi, blómakörfum og konfekti, dýrum loðfeldum, dýrum skartgripum, sætum smábíl, flottri sólarlandaferð með öllu uppihaldi meðtöldu, flottu kvöldverðarboði t.d., á Grillinu með öllu tilheyandi svo sem næturgistingu í hótelsvítunni á eftir o.s.frv., o.s.frv.?
Ég man þegar ég var og hét "ungur og fallegur", það eru mörg ár síðan, þegar að maður var á galeiðunni og málaði bæinn rauðan. Þá var það að besta aðferðin til að húkka sér dömu til næturgistingar eða bara "sjortara", var að segjast eiga nóg af víni heima. Sumar af þessum stelpum voru þannig að þær áttu sér nýjan bólfélaga 3-4 sinnum í viku og hjá sumum var hámark hreinlætisins að snúa við nærbuxunum kannski vikulega, í mesta lagi tvisvar í viku. -En gjaldmiðillinn var ætíð vín og tóbak.
Svona var ég sjálfur þegar ég var blankur og komst ekki út á galeiðuna, að kvenfólk átti það til að hringja í mann heim og buðu "heim til sín í mat, drukk og gistingu", eða jafnvel bara "elskan, má ég koma í gistingu hjá þér, ég er með eina flösku?" Var ég þá "vændismaður" eða naut ég bara "frjálsra ásta"? Menn (bæði kvenmenn og karlmenn) kaupa vændi.
Surning til feminista sem vilja banna kaup á vændi. Hvar eru mörkin á "vændi", "ekki vændi" og/eða "frjálsum ástum"? Í hvaða tilfellum er kaupandinn að brjóta lög - að ykkar mati?