25.5.2008 | 11:09
Söngvakeppni Vestur-Evrópuþjóðanna!
´
Nú ætla ég að vera RASISTI og FASISTI.
Söngvakeppni Evrópuþjóða (Evróvision - Júróvisjón) er orðið að pólitísku bitbeini, þar sem fyrrverandi kammúnistaþjóðirnar standa saman og þar eru Rússarnir hafðir í forsæti hvenær sem tækifæri gefst.
Og ekki erum við Norðurlandaþjóðirnar (Skandinavísku) þjóðirnar betri. Skoðið bara hvernig Danir röðuðu okkur frændþjóðunum í öll efstu sætin?
Og hver andskotan er Ísrael, sem er í Asíu; að gera í Evrópsku söngvakeppninni?? Þá vildi ég heldur hafa landlausa þjóð á borð við Palestínubúa, til að sýna Palestínumönnum samstöðu!!!
Hví þá ekki Ástralir, áar þeirra eru flestir frá Evrópu.
Við verðum einfaldlega að snúa til baka, og stofna Söngvakeppni Vestur-Evrópuþjóða.
Kær kveðja,
Björn bóndi.
´
![]() |
Enn einn sigur alls Rússlands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.5.2008 | 10:41
Söngvakeppni Vestur-Evrópuþjóða.
´
Nú ætla ég að vera RASISTI og FASISTI.
Söngvakeppni Evrópuþjóða (Evróvision - Júróvisjón) er orðið að pólitísku bitbeini, þar sem fyrrverandi kammúnistaþjóðirnar standa saman og þar eru Rússarnir hafðir í forsæti hvenær sem tækifæri gefst.
Og ekki erum við Norðurlandaþjóðirnar (Skandinavísku) þjóðirnar betri. Skoðið bara hvernig Danir röðuðu okkur frændþjóðunum í öll efstu sætin?
Og hver andskotan er Ísrael, sem er í Asíu; að gera í Evrópsku söngvakeppninni?? Þá vildi ég heldur hafa landlausa þjóð á borð við Palestínubúa, til að sýna Palestínumönnum samstöðu!!!
Hví þá ekki Ástralir, áar þeirra eru flestir frá Evrópu.
Við verðum einfaldlega að snúa til baka, og stofna Söngvakeppni Vestur-Evrópuþjóða.
Kær kveðja,
Björn bóndi.
´
![]() |
Söngvakeppnin gekk fram af Sir Terry |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.5.2008 | 15:41
Hver er RASISTI og hver er FASISTI?
´
Maður í ábyrgðarstöðu gagnvart félagsmálum í bæjarfélagi spyr spurningar á borð við: "Hve margir koma til að setjast hér að, og þá, hve margir fullorðnir og hve mörg börn?"
Er sá aðili RASISTI eftir kokkabókum fjölmiðlamanna?
Er ég FASISTI að spyrja þig þessarar spurningar? Svari fjölmiðlamenn og þeirra líkar, t.d., Egill Helgason í Silfri Egils.
Kær kveðja
Björn bóndi.
´
![]() |
Miðstjórn Frjálslynda flokksins styður Magnús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.5.2008 | 15:13
FEMÍNISTAR!!! - Lausn mansals-, klám-, súlustaða- og vændisvandamálanna eru í sjónmáli. DRÁTTARvélar leysa konur af hólmi.
'
Mansal hættir í staðinn koma bílasala! Nema Femínistar sjái andskotann í hverju horni hjá bifreiða- og ég tala nú ekki um DRÁTTRVÉLA- sölum.
Kær kveðja,
Björn bóndi.
´
![]() |
Játningar karlmanns: Hefur svalað sér á þúsund bílum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.5.2008 | 15:00
Með illu skal illt út reka - án lyfja.
´
Systir mín, dagreykingamanneskja (2-3 pk á dag) kunni ráð við þessari minningu um "Marlborough ilminn". Áður en hún hætti að reykja endanlega, safnaði hún saman sígarettustubbunum sem hún hafði drepið í í nokkra daga og setti í glekrukku með loftþéttu loki. (Að horfa á glerkrukkuna var eins og að horfa ofaní öskubakka eftir fjölmennt partí.) Síðan rann stóra stundin upp, dagurinn sem átti að hætta að reykja. Þá var sett vatn, t.d., 1/2 vatnsglas í stubbakrukkuna. Síðan var, á hverjum morgni áður en tennurnar voru burstaðar, (því það var tími fyrstu morgunsígarettunnar) lokið tekið af krukkunni og þefað sterklega af ófögnuðinum. Og aftur þegar komið var heim úr vinnunni. Svona endurtekið alla daga vikunnar. "Með illu skal illt út reka!"
Henni tókst þetta stelpunni!
Með kveðju,
Björn bóndi.
´
![]() |
Nikótínlyfið Champix: Sofna við stýrið og keyra út af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
´
Eins og ég þekki persónulegatil ríkisrekstrar, þá hefur þeim sem sækjast eftir störfum hjá ríkinu, sérstaklega í yfirmannastöður, sama hvar er í ríkisgeiranum, tekist að verða dragbítar og hrokagikkir sem ekki þola neina gagnrýni, hvorki beina gagnrýni, né jákvæða, vel meinta og uppbyggilega gagnrýni.
Égmaneftir því, þegarég vann sem sendill hjáinnflutnings- og heildverslunarfyrirtæki, þá var ég sífellt á þönum til hinna og þessa yfirmanna ríkisstofnana með gjafir, stundum jólagjafir, stundum bara reglubundnar gjafir í form vöru og stundum peninga í umslagi. Stundum var starfsmaður frá gamla Verðlagseftirlitinu til að sækja árlegu jólagjöfina handa starfsfólkinu, svo dæmi sé tekið. Ríkisstarfsmenn telja sig svo örugga með sitt, að þeir geta gert eins og þeim sýnist. Ég tala nú ekki um, þegar upplýsingar voru látnar leka, varðandi útboð/tilboð.
Ég held að einkarekstur (ekki endilega einkavæðing) ásjúkrastofnunum bjóði uppá meira aðhald, þar sem einkareksturinn þarf og verður að sýna meiri þjónustulund og trúnað, þ.e.a.s., að standa sig betur í stykkinu en keppinauturinn, þegarkemur til næsta útboðs.
Kær kveðja,
Björn bóndi.
´
![]() |
Bannað að miðla upplýsingum um sjúkling |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.5.2008 | 01:15
Hland er til margra hlutanytsamlegt og bragðgott - kíkið hér!!!
´
Hvað gerðu menn ekki til að flýta fyrir kæsingu hákarls þegar hann var kominn í gröfina, rétt áður en mokað var yfir hann! Jú! Þá var mygið á hann, og allt fór vel,og hann góður í maga og bragðast vel með brennivíni. (NÚ skil ég af hverju brennivínið...!!!).
Svo gat pissið verið sætt og gott, t.d., ef karlinn var haldinn sykursýki. Þá verðir pissið þykkt og sætt því líkaminn vinnur ekki úr sykrinum.
Hafið þið smakkað sæta matarolíu? Ekki nema von að þessi "matarolía" hafi selst vel.... svona sæt á bragðið!!!!
Svo er Extra-Virgin olían, hún er framleidd í nunnukalustrum þar sem nunnurnar hafa aldrei......... þú veist, gert svona dodo, eða þannig sko.
Kær kveðja,
Björn bóndi
![]() |
Seldi þvag í stað matarolíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2008 | 22:47
Tvískinnungur BNA er takmarkalaus.
´
"Hann [Obama] segist ætla að viðhalda viðskiptabanni á Kúbu þar til kommúnistastjórnin þar í landi ákveður að sleppa pólitískum föngum, veiti íbúunum aukið frelsi og ákveður að halda kosningar sem alþjóðasamfélagið getur fylgst með."
Síðast þegar BNA barðist fyrir því að "einræðisríki" héldi frálsar korningar sem alþjóðasamfélagið fylgdist með, þá var það í Palestínu. En bannsettir arabarnir kusu ekki rétt, þ.e., þeir kusu HAMAS og þá dæmdu BNA menn kosningarnar ógildar.
Tvískinnungur Bandaríkjamanna er slíkur, að ég held að best sé að Ralph Nader yrði skaðlausasti forsetinn.
Kveðja
Björn bóndi.
´
![]() |
Obama heitir breyttri afstöðu gagnvart Kúbu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.5.2008 | 03:49
Ritskoðun / Bloggsíðu lokun > hvort er verra?
Kæru Bloggarar.
Neðangreint blogg var ég að semja sem svar til Berglindu Nönnu Ólínudóttur sem andsvar við hennar svari til mín á bloggsíðu; Jennýar Önnu Baldursdóttur, (jenfo.blog.is) færsla;http://jenfo.blog.is/blog/jenfo/#entry-543218
sem gefur sig út fyrir að vera Vinsti Græn (kommúnisti í mínum bókum) og Femínisti (afsakið á meðan ég æli). Ég gat ekki komið því inn, því að Jenný Anna Baldursdóttir hefur látið loka á mig. Gamla góða ritskoðunin sem allir urðu æfir yfir þegar Mbl.is blogg lokaði á Skúla Skúlason og Óskar Helga Helgason.
Jenný Anna sem hefur dælt út úr sér svívirðingum um karlmenn og fleiri sem hún þolir ekki í vandlætingu sinni. Þeir sem hafa snefil af lífsreynslu, þekkja það að þeir sem sífellt eru að gera grín að öðrum, þola ekki að grín sé gert að þeim. Þeir sem sífellt gagnrýna aðra, þola ekki að þeir séu gagnrýndir. Þau born sem sífellt eru að hrekkja önnur börn, þola eikki að þau sjálf séu hrekkt - þetta þekkja allar mæður og kennarar. Þeir sem leggja aðra í einelti, þola síst af öllum að þeir séu lagðir í einelti.
Það er ekki sama að vera Jón og Séra Jón(a).
Nú er ekki ritskoðað, það er bara lokað á mig!!!
______________________________________________________
Berglind (N)anna.
Svar við færslu þinni á bloggi Jennýar Önnu Baldursdóttur;
http://jenfo.blog.is/blog/jenfo/#entry-543218
Ég virði hreinskili þína, og að þú viðurkennir að þér hafi orðið fótaksortur á tungunni í heita hamsinu. Það er þannig með sveitamenn, að þeir oft virðast vera mjög seint til svars, og bæjar-/borgarfólk verður oft óþolinmótt að bíða eftir svari frá þessum "fábjánum". Staðreyndin er sú að sveitamaðurinn tekur sér þann tíma sem hann telur sig þurfa til að ákveða svarið. Þess vegna heyrir þú og aðrir af þéttbýliskjarnanum,sveitamanninn segja eitthvað á þessa leið: "Það getur vel verið að ég hafi sagt þetta si svona, en auðvitað meinti ég það ekki svona. Það getur nú hver heilvita maður fattað það!" (Rétt erað taka fram að þegar ég rita (sveita-) maður, meina ég eðlilega bæði kvenmaður og karlmaður, en það er meining mín að bæði kynin eru "menn"). - Alltaf -
Beglin (N)anna mín. Nú erum við bæði búin að blása duglega (og skemmtilega) út, og þurfum ekki að hafa fleiri orð um þessa hluti. Sem þýðir bara eitt, að ég þori ekki á þetta deit sem um var rætt á "Einkamálalínubloggi Höllu Rutar" eins og ég útskýrði þar.
Kær kveðja,
Björn bóndi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
´
Þegar Ingibjörg Sólrún fór til þess að heimsækja hana Kondomlessu Ræs, þá hlýtur það að hafa verið til þess að mótæla mannréttindabrotum Bandaríkjamanna og taglhnýtinga þeirra í Afgahnistan og Írak.
Svo hlýtur hún einnig verið að mótmæla stuðningi Bandaríkjamanna við vini sína Ísraelsmenn og fjöldamorð þeirra og misþyrmingar á Palestínumönnum.
Eða,- nei. Hún komst ekki að, því að Kondomlessa Ræs mótmælti harðlega hryllingsmorðum Íslendinga á hrefnum, sem þeir síðan éta eins og hverjir aðrir villimenn og kunna síðan ekkert að skammast sín.
Kær kveðja,
Björn bóndi.
´
![]() |
Hagsmunum fórnað með veiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)