Eru unglingsstúlkur orðnar "HANDRUKKARAR"?

Ztúlkan sú sem taldi sig eiga sökótt við fórnarlambið var ekki ein af þeim sem stóðu að misþyrmingunum.  Heldur voru það aðrar sem voru fengnar til verksins.  Hljómar þetta kunnuglega úr undirheimum?

Þessa þróun þarf að stöðva með hörkunni að vopni.

Kveðja,Björn bóndi  Smile 


mbl.is Hafa játað að hafa haft sig mest í frammi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Þetta verður ekki stöðvað. Íslenska þjóðin er meðvirkasta þjóð heimsins. Hún kóar með hrottunum. Fórnarlambið gleymist. Þær fá engan dóm. Ekkert verður gert. Varstu búin að gleyma í hvaða landi þú lifir?

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 11:34

2 identicon

stelpurnar baðu alrei um 150 . þúsund krónur , þettta er tilbúningur hja systur fórnalambsins eða fjolmiðlum .

stúlkurnar þurfa ekki ad greiða skaðabætur þar sem fórnalambið er adeins med eitt glóðurauga og marblett á kinn .

anna (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 14:10

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

anna, varst þú ein af þessum sjö?

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 15:20

4 Smámynd: Baldur Blöndal

@ anna

Hvort sem þetta er rétt eða ekki þá á sögnin að "biðja" ekki við hérna, enda hrottaleg árás. Og jafnvel þótt þær hafi aldrei beðið stelpuna um pening, gerir það málið mikið skárra? Var henni kannski misþyrmt af góðum og gildum ástæðum?

Frá því sem ég hef heyrt þá voru þetta ekki bara eitt stykki glóðurauga og marblettur heldur grafalvarlegir höfuðáverkar. Ég útiloka ekki að þú hafir rétt fyrir þér, en þú hljómar frekar eins og aðstandandi árásarmannanna.

Baldur Blöndal, 1.5.2009 kl. 22:09

5 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Anna hljómar frekar eins og manneskja sem veit ekki muninn á réttu eða röngu.

Rúnar Þór Þórarinsson, 2.5.2009 kl. 04:59

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvernig hörku ertu með í huga Björn bóndi?

Baldur........æææ hvernig ætti að vera hægt að gleyma því  að við lifum í landi sem er helsjúkt á alla kanta eftir 18 ára samfellda stjórn Íhaldsins?

anna........ er ekki allt í lægi vinan?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.5.2009 kl. 18:39

7 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Anna og Handrukkarasambandið skilja ekki neitt nema ofbeldið sé nógu mikið.

Marta Gunnarsdóttir, 10.5.2009 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband