Ekki trufla óvin þinn þegar hann er að gera mistök!

Hversvegna fer Ólafur F borgarstjóri svona í taugarnar á andstæðingum sínum??

Napóleon Bónaparte hershöfðingi og síðar keisari skrifaði eitt sinn: "Ekki trufla óvin þinn þegar hann er að gera mistök."

Hamagangurinn og hávaðinn í andstæðingum Ólafs F borgarstjóra, illindin, upphrópanirnar og hatursáróðurinn ásamt hótunum um málsókn o.s.frv., o.s.frv., sýnir okkur einfaldlega að Ólafur F er að gera eitthvað mjög rétt, sem andstæðingarnir sjá, þola svo ekki og öfunda hann útaf.  Vilja koma í veg fyrir að hann framkvæmi það, svo það geri ekki veg núverandi borgarstjóra sem glæsilegastan, þannig að hanns verði minnst í lok kjörtímabils, sem frækilegs stjórnmálamanns, hugrakks manns sem þorir að taka ákvarðanir, sama hvað aðrir segja.  Fylgir eigin hugsjónum og skoðunum.  - Svona til tilbreytinga frá öðrum stjórnmálamönnum.

Ég sjálfur er ekki skoðanabróðir Ólafs F borgarstjóra, en þegar ég sé hugrakkan stjórnmálamann og heiðarlegan, þá vil ég sýna honum fulla virðingu.

Kær kveðja, Björn bóndi   Kær kveðja, Björn bóndiïJð<  


mbl.is Skipt um fulltrúa í skipulagsráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

hehe.... þú ert þétt fyndinn

Jón Ingi Cæsarsson, 7.8.2008 kl. 17:06

2 Smámynd: Skattborgari

Láttu andstæðinginn koma höggi á sjálvan sig því að þá er hann varnarlaus gegn árásum á meðan.

Ég get ekki séð betur en að hann sýni eigin heimsku hvað eftir annað og sé fullfær um að koma höggi á sjálvan sig. Leyfa honum bara að gera það í friði hann er sjálvum sér verstur.

Ef þú kastar drullu þá er hætta á að hún komi til baka. 

Kveðja Skattborgari 

Ps þoli mannin ekki og tel að hann eigi að segja af sér.

Skattborgari, 7.8.2008 kl. 18:32

3 identicon

já held bara að allt komi til baka til mans!!!!!   Svo högum okkur vel!!!! 

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 00:01

4 Smámynd: Heidi Strand

Góður.

Heidi Strand, 10.8.2008 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband