Gamalt húsráð varðandi "vonda stráka".

Ég las fyrir mörgum árum, fyrir tíð sjónvarpsins, um hvaða reynslu væri gott fyrir háttvísar, penar, sætar og kvenlegar stúlkur að hafa, sem vildu finna sér gott eiginmannsefni, trygglyndan, heiðarlegan og eftirsóknarverðan til að halda í fyrir lífstíð.  Góða og harðduglega fyrirvinnu og góðan barnsföður.   Og haldið ykkur nú....!

Hún þyrfti að hafa upplifað að verða hrifin af og hafa gefið sig að minnsta kosti einum karlmanni sem hafði það til að bera að vera: flagari, drullusokkur, aumingi, afæta, ótraustverðugur og ótrygglyndur aumingi (vondan strák) sem yfirgæfi hana þegar ástarbrimi hennar væri sem hæstur(!!!!!). 

Og hvað hafði þetta með það að gera að geta náð sér í:  "...gott eiginmannsefni, trygglyndan, heiðarlegan og eftirsóknarverðan til að halda í fyrir lífstíð.  Góða og harðduglega fyrirvinnu, góðan barnsföður." ?????

Jú, dömur mínar sem lesið þetta alveg agndofa; þetta var talið vera nauðsynlegt til að venja stelputíkina af því að vera að abbast uppá hina og þessa karlmenn (vonda stráka) í tíma og ótíma eftir giftingu og kunna að meta góðan tryggan eiginmann.  - Og hana nú!

Annars hef ég ekkert vit á þessu,

Bless, Björn bóndi.


mbl.is Vondu strákarnir sigra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ætli þetta eigi að tryggja rétt viðmið?

Hólmdís Hjartardóttir, 14.7.2008 kl. 10:02

2 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Nú verður þú að spyrja þær sem sömdu þessi húsráð.  Þú finnur þær undir grænni torfu í kirkjugarðinum við Suðurgötu, best er að hitta þær um eða eftir miðnætti.........þegar þær fara að fá sér ferskt loft......

Kær kveðja, Björn bóndi.

Sigurbjörn Friðriksson, 14.7.2008 kl. 10:42

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Óborganlegur

Heiða Þórðar, 15.7.2008 kl. 03:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband