Svona fer fyrir svikulum kommum!!!

Steingrímur J. Sigfússon var dauður og kominn til himna þar sem hann hitti Lykla-Pétur.

Lykla-Pétur varð svolítið vandaræðalegur: "Eh, velkominn," sagði hann loks.

"Þakka þér fyrir," sagði Steingrímur, "ég vissi að ég mundi enda hér".

- "Nja," sagði Pétur , "þú hefur lifað sæmilega frómu lífi, eða þannig, svo við vildum gjarnan hafa þig hér en því eru ekki allir sammála. Þú ert umdeildur maður og það hafa fleiri áhuga á þér en við hér í himnaríki. Við urðum að halda fund með djöflinum þar sem þetta var rætt og það endaði með því að við gerðum samning við hann."

"Samning!" Hrópaði Steingrímur og var sýnilega brugðið.

"Það er nú ekki alslæmt," sagði Pétur, "en djöfullinn sagðist nú þegar hafa flesta vini þína svo við sömdum um að þú eyddir einum sólarhring í helvíti og öðrum hér hjá okkur í himnaríki og svo velur þú sjálfur hvar þú dvelur um aldur og eilífð.

Steingrímur maldaði svolítið í móinn en samningur er jú samningur svo Pétur vísaði honum á lyftuna, kvaddi hann og sagðist sjá hann eftir sólarhring.

Steingrímur ýtti á hnapp merktan "helvíti" í lyftunni og seig svo langt, langt niður á við þar til lyftan stoppaði við kolsvarta hurð. Þegar dyrnar opnuðust stóð djöfullinn sjálfur fyrir innan. "Gamli vinur, vertu hjartanlega velkominn, gakktu í bæinn," sagði djöfsi.

Steingrímur fór inn og við honum blasti risastór golfvöllur. Margir af hans gömlu flokksbræðrum léku golf á vellinum eða stóðu í smáhópum og töluðu saman. Golfvöllurinn var fullkominn. Það var heitt í lofti og út um allt voru léttklæddar, snoppufríðar djöflastelpur sem færðu mönnum bjór og aðra kalda drykki. Steingrímur lék golf allan daginn og um kvöldið bauð Svavar Gestsson, sem hafði dáið nokkru áður, honum í "gúrme"grill (hafði sem sagt grætt um daginn og grillað um kvöldið) ásamt Indriða, Álfheiði og fleiri góðum vinum með öllu góðgæti sem hugsast gat. Fáum sögum fer af því hvernig Steingrímur eyddi nóttinni en sólarhringurinn í helvíti var fljótur að líða og morguninn eftir var honum vísað á lyftuna á ný.

Þegar Steingrímur kom aftur til himnaríkis var hann efins um ágæti þess staðar en það var samt sem áður tekið vel á móti honum. Hann var klæddur í englaföt og fengin harpa til að leika á. Hann eyddi deginum með því að ganga um milli skýjanna, hlustaði á fagran fuglasöng og borðaði ferska ávexti.

Hann fékk reyndar í magann af ávöxtunum og það pirraði hann að sjá Davíð og Þorgerði sitja saman á skýi og leika á hörpur af mikilli innlifun.

Um kvöldið kom Pétur. "Nú ertu búinn að dvelja heilan sólarhring í helvíti og heilan dag hér í himnaríki. Ertu kannski búinn að ákveða þig?" Spurði postulinn.

"Hmm," sagði Steingrímur, ég átti nú kannski ekki von á því en ég held að ég velji helvíti, þrátt fyrir allt. Það er heppilegasti staðurinn fyrir mig."

Andlitið datt af Pétri og hann reyndi hvað hann gat að fá Steingrím ofan af ákvörðun sinni. En Steingrímur var harðákveðinn.

Á ný fór Steingrímur með lyftunni niður í helvíti og djöfullinn tók aftur á móti honum. Hann kippti Steingrími inn en þar var þá allt öðru vísi umhorfs en daginn áður. Brennisteinsfnykinn lagði um allt og skerandi sársaukavein flokksbræðra hans og vina fylltu loftið. "En hvar er golfvöllurinn?" Spurði Steingrímur. "Og djöflastelpurnar, bjórinn og grillið?

- "Ah," sagði djöfullinn, "þú skilur þetta mann best, í gær var kosningabaráttan í fullum gangi. En nú ertu búinn að kjósa!"


mbl.is Segir forsetann taka undarlegan pól í hæðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Gleðilegt ár.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 3.1.2010 kl. 01:46

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já svona er það. Var reyndar búinn að lesa svipað ef ekki eins á fuglahvísli fyrir nokkru. En stendur fyrir sínu eigi að síður núna, kveðja.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 3.1.2010 kl. 02:01

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Góður!

Gleðilegt árið, takk fyrir samskiptin á því liðna.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.1.2010 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband