Hver var launakostnaður Lögreglu við að komu upp um 20 lítra af Landa?

Hvað gengur að Lögreglunni?  Í gær var frétt um "bruggverksmiðju" á Klapparstíg þar sem fannst ein tunna af gambra og "lítirræði" af fullunninni vöru! 

Hver er munurinn á "bruggverksmiðju" og "heimabruggi" með hráefni frá Ámunni?

Hver er launakostnaður lögreglumannanna sem hafa staðið að þessarri viðamiklu rannsókn og stórkostlega árangri lögreglunnar í Landa uppgötvun? 

Er ekki áfengisneysla lögleg?  Er ekki heimabrugg til eigin notkunar löglegt?  Þarf ekki að lækka áfengisverð í ÁTVR til að hamla við fíkniefnaneyslu sem er ódýrari en áfengiskaup nú til dags?

Kær kveðja, Björn bóndi  Smile


mbl.is Landaverksmiðju lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður B Hjartarson

 Styrkjum sprotafyrirtækin    .

Hörður B Hjartarson, 19.1.2009 kl. 11:21

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Svo er þetta andstyggileg árás á bændur.

Jóhannes Ragnarsson, 19.1.2009 kl. 11:33

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það er ekkert að gera á Íslandi, engin spilling og allt í sólblóma. Löggan þarf að finna sér eitthvað að gera.

Villi Asgeirsson, 19.1.2009 kl. 12:23

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

 Hvað er í gangi? Hefur ekki verið skýr krafa frá almenningi að tekið verði á spillingunni, sukkinu og svínaríinu í þjóðfélaginu? Og svo þegar löggan hjólar í þessa stórhættulegu og spilltu  sjálftökumenn, sem ógnuðu sálarró þjóðarinnar og lætur þá taka afleiðingum gjörða sinna, þá verður allt vitlaust. Hvernig á maður að skilja þetta?  

Nú þegar sökudólgarnir hafa verið gómaðir getur Hörður Torfa tekið það rólega á laugardaginn og leyft Shrek Stefánssyni  og Ruslagám jólasveini  að halda ræður fyrir hvorn annan á auðum Austurvelli.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.1.2009 kl. 19:23

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vér mótmælum öll!!!  Heimilisiðnaður hefur alltaf verið í hávegum hafður hérna á Íslandi!!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.1.2009 kl. 03:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband