18.12.2008 | 18:08
Sagan endalausa um Bör Börsson og skraddarann hans.
Ég las bókina Bör Borsson eftir norska skáldið Falkenberget sem Helgi heitinn Hjörvar þýddi og las í Ríkisútvarpið við eindæma hlustun fyrir miðja síðustu öld. Þar var skraddari sem Bör Börsson skuldaði einhverja peninga fyrir gerð á þjóðbúningum. Eitthvað gekk erfiðlega að rukka inn peningana, þannig að endingu lokaði skraddarinn sjoppunni og gerði það að eina starfi sínu að eltast við Bör Börsson til að rukka hann og eirði sér hvorki svefns né hvíldar þar til að lokum, ég held, að hann hafi örmagnast.
Ríkislögreglustjóraembættið minnir mið eilítið á þennan skraddara.
Með kveðju, Björn bóndi
![]() |
Ákært á ný í Baugsmálinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2008 | 14:21
Nýr Útrásarvíkingur kemur í ljós og systurnar; Öfund, Afbrýðissemi og Hatur halda nú innreið sína til varnar með rógsherferð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2008 | 10:58
40-50 stjórnleysingjar og atvinnu mótmælendur.
Það þarf að taka hart á þessu fólki strax, áður en þetta fólk fær að eyðileggja meira. Hvað er gert við óknytta stráka sem brjóta rúður í strætisvagnaskýlum? Þetta fólk telur sig geta skemmt "löglega" af því þau eru að "mótmæla" kerfinu. Einnig því að fjölmiðlar standa í því að æsa þetta upp í þeim. Hvar er sjónvarpsfréttakonan sem vildi hvetja til eggjakasts mótmælenda í lögregluna í vörubílamótmælendunum? Þar var hún "óvart" í opinni útsendingu og því rekin. Hvað þyrfti að reka marga fréttamenn í dag sem hafa bara ekki nást í?
Kveðja, Björn bóndi.
![]() |
Rúður brotnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Að lesa hneykslunarbloggin út og suður af því að einhver kona er snjöll, dugleg og framagjörn, kurteis og kann mannlega sem og fagmannlega framkomu en er ekki að selja kúlulegur, fiskimjöl né fiskafurðir eða hlutabréf.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég er vitni að fordómum gagnvart fallegri konu, fyrir það eitt að hún er ekki með hor í nefinu, brjóst hangandi niður á nafla, stóranog feitan rass, stutt í klofið, í lopapeysu með kringlótt gleraugu, reykir pípu og tekur í nefið.
Þannig var Halla hans Fjalla Eyvindar útilegumanns og ég hef ekki lesið neina nútímagagnrýni áhana, en hjá konum vekur Ásdís Rán ótta, öfund og afbrýðissemi sem af skiljanlegum ástæðum blandast þá einnig hatri sem er eðlilegt, þær eru jú konur.
Karlpeningurinn hinsvegar sem horfir en ekki fær hugsar: "Jú vínberin eru áreiðanlega súr" (Dæmisögur Esóps). Einnig þetta karlermbu viðhorf: "Hún er ljóshærð og falleg og hlýtur þá að vera heimsk og vitlaus, tómt í höfðinu á henni. Þar að auki kvenmaður og henni fellur best að vera "Bara HúsMóðir (BHM) og "Eldhúsmella". (BHM og Eldhúsmella eru orðatiltæki sem voru fundin upp af Rauð-Sokkum til að niðurlægja aðrar konur í þá tíð).
Ásdís Rán, þó ég þekki hana ekkert nema úr fjarlægð, þ.e., úr fjölmiðlum, er til algjörrar fyrirmyndar að mínu mati, dugleg, vinnusöm og framagjörn. En því hún er "Útrásar Víkingur" og þá er löglega búið að veita veiðileyfi á hana og allir mega (og eiga?) að niðurlægja hana, fyrirlíta og hata.
Dugnaður og framagirni = vont. Meðalmenska = gott. Aulaháttur, leti og ómennska = best. Þetta er manngildi nútímans, eftir bankahrunið.
Kær kveðja, Börn bóndi