Árni talar enskuna með skoskum hreim.

Árni lærði sín fræði í háskóla í Skotlandi og talar því enskuna með skoskum hreim.  Það útskýrir að Enski fjármálaráðherrann vildi ekki skilja Árna.  Þegar Skoti talar ensku, er það eins og fyrir Íslendinga að heyra Íslensku talaða af Dana sem er búinn að vera búsettur hér í 20 ár.

Munið frjálsu bloggsíðuna;  http://blekpennar.com    Kær kveðja, Björn bóndiïJð        

 


mbl.is Samtal við Árna réð úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er sjálfstýring á meðan er verið að varalita sig í akstri?

Eða er skilyrði að þær séu með andlitsslæður, svo þær þurfi ekki að vera að varalita sig á meðan á akstri stendur?

Munið frjálsu bloggsíðuna;  http://blekpennar.com    Kær kveðja, Björn bóndiïJð        

 


mbl.is Bifreið sem er sérhönnuð fyrir konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banna með lögum; verðbólgu, kreppu, fátækt, gengisfellingu, rigningu og roki.

Ef verið er að mótmæla, þá þarf að koma samtímis með lausnir.  Annað er nöldur.  Kannski er Bubbi Morthens orðinn eins og Femínasnar sem eru í sífellu að mótmæla líkamlegu sköpunarlagi fóks og kallar það klám.

Nei, ég held að Bubbi sé að kaupa sér ódýra auglýsingu mitt í hremmingum fólks og þjóðar.

Munið frjálsu bloggsíðuna;  http://blekpennar.com    Kær kveðja, Björn bóndiïJð        

 


mbl.is Fjöldi fólks á mótmælasamkomu Bubba
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Selja Vatnsmýrina sem er verðlögð á 78 Milljarða!!

Eitt athyglisvert m.a., kom fram í máli Þorvaldar Gylfasonar prófessors, og það er að selja flugvallarstæði Reykjavíkurflugvallar, þ.e., Vatnsmýrina sem nú er verðlögð á 78 milljarða, þar er eitt stórt lóð á vogarskálina í baráttunni við lausafjárvandann og kreppuna, því ókeypis flugvallarstæði er hvort sem er fyrir á Miðnesheiðinni, þ.e., Keflavíkurflugvöllur.  Hvað erum við lengi til Höfuðborgarsvæðisins þegar komnar eru tvær tvöfaldar akreinar milli Suðurnesja og Höfuðborgarsvæðisins? 15-20 mínútur?  Miðdepill Höfuðborgarsvæisins er ekki endilega Lækjartorg eða Austurvöllur.  Það eru ekki mörg ár í það að Suðurnesin, m.a., Reykjanesbær verða talin til Höfuðborgarsvæðisins eins og Akranes og Selfoss/Hveragerði verða.  10 ár?

Munið frjálsu bloggsíðuna;  http://blekpennar.com    Kær kveðja, Björn bóndiïJð        

 


mbl.is Líst illa á að lífeyrissjóðir flytji fé heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haukar sigruðu án stuðnings heimamanna!

Það var sorglegt að fylgjast með svona leik, þar sem áhorfendastúkurnar voru svo gott sem tómar í upphafi leiks.  Það hlýtur að skipta miklu máli í heimaleikjum að fá stuðning heimamanna, en svona léleg mæting hlýtur að hafa virkað ákaflega neiðkvætt á Haukana.  En gott hjá Haukum að vinna samt!

Munið frjálsu bloggsíðuna;  http://blekpennar.com    Kær kveðja, Björn bóndiïJð        

 


mbl.is Glæsilegur sigur Hauka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólböð, líkamsrækt, tannréttingar, hárgreiðsla, andlitsförðun, líkamsþvottur, tískuklæðnaður, snyrtimennska, mannrækt o.s.frv., allt eru þetta lýtaaðgerðir. Hvað er að lýtaaðgerðum?

Þegar ég var um þrítugt fékk ég svo slæma lófakreppu að ég gat ekki heilsað með handarbandi nema með þrem fingrun, vísifingri og löngutöng ásamt þumalputta.  Hinir voru krepptir inn í lófann.  Ég fór í lýtaaðgerð sem tókst vel.  Um 15 árum síðar kom þetta aftur og hálfu verra og nú á báðum höndum.  Aftur fór ég í lýtaaðgerð og er með báðar hendur sléttar og tiltölulega fínar.  Um fermingu hafði ég farið í tannréttingar (lýtaaðgerð á tönnum), því að ég var með skögultennur í efri góm og ég leit út eins og erfingi Drakúla greifa.  Ég stunda sund daglega og er því með ljómandi ljósbrúnan hörundslit sem margir virðast öfunda mig af.  Einnig er ég þess vegna þokkalega vel útlítandi líkamlega og er hraustur og heilsugóður sem er ómetanlegt.  Ég drakk of mikið brennivín á árum áður og fór í meðferð til að hætta þeim andskota.  Ég læt klippa hár mitt reglulega til að hafa fallega snyrt hár og greiði það nokkrum sinnum á dag.  Ég fór á námskeið í mannlegum samskiptum og einnig í framsögn til að bæta úr því sem þar var ábótavant.  Ég geng í snyrtilegum og hreinum fötum.  Fer með fötin í hreinsun þegar með þarf.  Mannasiðir, borðsiðir, almenn kurteisi og háttvísi eru í fyrirrúmi hjá mér og hef ég lagt mig fram um að læra slíkt þar sem það var hægt. Ég lít á allt þetta sem lýtaaðgerðir, ef ég hefði ekki gert í þessu, liti ég út eins og Femínasni í skítugum illa förnum karlmannsfötum.

Fyrirsætan Dita Von Teese er kona að mínu skapi.  Hún vill ekki líta út eða haga sér eins og Femínasni og lætur laga það sem hún sjálf á ekki auðvelt með að gera hjálparlaust.  Ef brjóstin hennar mættu líta betur út, lætur hún laga þau.  HVAÐ ER AÐ ÞVÍ??

Munið frjálsu bloggsíðuna;  http://blekpennar.com    Kær kveðja, Björn bóndiïJð        

 


mbl.is Skammast sín ekki fyrir lýtaaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

25% eða 1/4 "hælisleitenda" eru úlfar í gæruskinni.

10 manns af 40 hælisleitendum eru hvorki meira né minna en 25% eða 1/4 af hópnum.  Ef þetta réttlætir ekki strangt eftirlit Útlendingastofu með aðstoð lögregluunnar, þá hvað.  Ef 25% ökumanna aka um undir áhrifum eiturlyfja og áfengis, réttlætir það ekki strangt eftirlit á götum úti.

Þessi 25% "hælisleitenda" sem voru þarna undir fölskum forsendum földu sig eins og úlfar í sauðahjörð.  Auðvitað gerði Lögreglan og Útlendingastofnum rétt með aðgerðum sínum, sama hvað öllu "útlendingadekri" viðkemur.  Auðvitað þarf að vernda umhverfi þeirra sem eru raunverulegir hælisleitendur og sem eiga um sárt að binda.

Munið frjálsu bloggsíðuna;  http://blekpennar.com   

Kær kveðja, Björn bóndiïJð    


mbl.is Drógu umsóknir til baka eftir húsleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband