15.3.2009 | 17:06
Versti óvinur endurreisnarinnar eru íslenskir fjölmiðlar.
Þakkir eiga þeir í 66°Norður að færa okkur landsmönnum þessar fréttir af góðum móttökum og góðu viðmóti sem fyrirtækið fékk á sýningar- og söluferðum þeirra um útlönd.
Það er hald mitt að helstu orsakavaldar þunglyndis og depurðar ásamt svartsýni og kvíða íslendinga er hið sífellda neikvæða viðmót fjölmiðlanna um hvað framtíðin ber í skauti sér og verstir eru RÚV viðtalsþættirnir Silfur Egils og Kastljósið. Hafi þeir Egill Helgason, Helgi Seljan og Sigmar eilífa skömm fyrir, ásamt Páli Magnússyni útvarpsstjóra RÚV fyrir að leyfa þennan ósóma.
Kveðja, Björn bóndi
Fékk það ekki óþvegið í andlitið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er mottó okkar Íslendinga ekki að vera á allra vörum? Það er verra að vera frægur að endemum. Þannig er okkar orðspor í dag.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.3.2009 kl. 01:42
Já, eða: "Betra er illt umtal en ekkert umtal" - sagði stjórnmálamaðurinn.............. Var ekki eitthvað svona líka???
Kk, Björn bóndi
Sigurbjörn Friðriksson, 17.3.2009 kl. 02:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.