27.2.2009 | 16:46
Okkur vantar skipstjórann í brúna, þennan sem við öll þekkjum!!
Bara til að geta sofið rólegur á nóttunni og vitað að þjóðarskútan á sjéns.
Sjálfur er ég að komast í þunglyndiskast að sjá Steingrím J, Ögmund, Kolbrúnu Halldórsdóttur og þeirra kóna við stjórnvölinn, því þessir öfgasinnar eru þeir sem stjórna ferðinni og Samfylkingin er teymd á asnaeyrunum í langri þrá að fá að vera í ríkisstjórn, "sama hvað það kostar". Svo er talað um að ekki megi kaupa vændi. Þá ætti að stinga VG í steininn fyrir vændiskaup. Að draga Samfylkinguna uppí til sín undir sæng fyrir forsætisráðherrastól.
Ég er ekki að reyna að vera fyndinn.
Kær kvaðja, Björn bóndi
Davíð í framboð á Suðurlandi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við erum laus við ræningjahópinn sem böðlaðist um í samfélaginu og eirði engu ef von var á "fé án hirðis." Og einhver lykt af peningum sem hægt var að koma úr landi í tryggt skjól undir "bankaleynd."
Mikið óskaplega hefur mengunin í borginni minnkað í seinni tíð.
Nú liggur mikið við að forða því að sjálfstæðismenn komist í námunda við stjórnsýsluna. Það gengur nefnilega fjöllunum hærra að þeir skammist sín ekki meira en svo að það sé hugmyndin hjá þeim að bjóða fram í öllum kjördæmum"
Árni Gunnarsson, 27.2.2009 kl. 18:39
Þá vitum við hvar þú stendur. Steingrímur J, Kolbrún og Ögmundur skal það vera.......!
Kveðja, Björn bóndi
Sigurbjörn Friðriksson, 7.3.2009 kl. 14:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.