Úlfurinn, lambið og alþjóðasamfélagið..........

Dæmisögur Esóps;  Sögupersónur; Úlfurinn = Ísrael og Lambið = Palestínía.

Einu sinni var Lambið að drekka úr læk.  Þá kemur Úlfurinn og tyllir sér ofan lækjar og áður en hann fer að drekka segir Úlfuninn við Lambið: "Ef þú gruggar fyrir mér vatnið í læknum á meðan ég er að drekka, þá drep ég þig og ét þig."  Lambið sem var neðan lækjar og gat því ekki gruggað vatnið fyrir Úlfinum sagði: "Ég skal ekki grugga fyrir þér vatnið."

Nú fór Úlfinum að leiðast að hafa þetta Lamb drekkandi sífellt úr læknum sem hann þóttist eiga.  Þá voru góð ráð dýr.  Úlfinum datt þá eitt þjóðráð í hug!  Úlfurinn gruggaði upp vatnið hjá sér sjálfur og hrópaði á Lambið: "Sjáðu hvað þú hefur gert!  Þú hefur gruggað fyrir mér vatnið mitt!  Nú ætla ég að drepa þig og éta, til að hefna mín, ég var fyrir löngu búinn að vara þig við!"  Síðan réðst Úlfurinn á Lambið, drap það og át." 

Það var gert við mikla hrifningu Bandaríkjamanna og Evrópusambandsríkin stóðu stutt frá og klöppuðu Úlfinum lof í lófa, því nú væri loksins komin friður á í kringum lækinn.

Endursagt og staðfært af Birni bónda  Smile 


mbl.is Æfðu innrásina í átján mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

MInn Úlfur sefur, þangað til ég fer með hann út að pissa.  Sem er mjög bráðlega, svo sofum við bæði til morguns.   Það er verst að jólafrí barnanna líkur í fyrramálið og vekjaraklukkan mín hringir eftir rúma 4 klukkutíma og ég er ekki einusinni byrjuð að geispa  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.1.2009 kl. 03:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband