Harðfiskur gerður upptækur!!

Allt í lagi að gera vígt vatn upptækt ens og eimaðan vökva eins og brennivín.  En ég sendi dóttur minni sem var búsett í Nýja-Sjálandi um árið, harðfisk ásamt Malti og Egils appelsíni, Ópal og Prins-Póló í jólasendingu (bannað að senda rjúpur í pósti núna).  Aðeins harðfiskurinn var gerður upptækur, en hann var vakkúm pakkaður (lofttæmdar umbúðir svo sveitavarguninn skilji þetta) eins og hass og e-töflur eru, þegar þeim er smyglað.

Svona er nú skrýtinn kýrhausinn.

Kær kveðja, Björn bóndiïJð<  
mbl.is Varað við vígðu vatni í handfarangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skattborgari

Þetta er fáranlegt hvað halda þeir á Nýja-Sjálandi að maður kafni af því að borða harfisk eða hvað.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 30.8.2008 kl. 15:19

2 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Guðrún Gardínubytta; Þú misskilur þetta allt saman.  Þetta voru krítverskir útsendarar siðasveitar sérþjálfaðrar hjá Hinni Íslensku Áfengisvarnarnefndar, að koma í veg fyrir að þú værir að venja barnið þitt á bland.  (Íslenskt Brennivín er sagt mjög gott í ísköldu Sprite - ekki með sítrónu).

Skattborgari; þeir gætu hafa haldið að hún dóttir mín ætlaði að fá sé harðfisk "línu" í einhverju partíinu.

Kær kveðja, Björn bóndiïJð<  

Sigurbjörn Friðriksson, 30.8.2008 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband