Stefán Pálsson er þekktur fyrir kímni og grín og hann er eins og nútíma "Baldur & Konni", töframaðurinn sem dró dúfur upp úr hattinum sínum, frasmdi spilagaldra og fleira og var búktalarinn með dúkkuna, fyrir um 40-55 árum síðan. Bara Stefán stendur einn á sviðinu og skemmtir fólki. Það eina er, eins og með galdrana hans Baldurs og "Baldur & Konna", að mörg yngstu og minnstu börnin trúðu að galdrarnir væru sannir og að dúkkan Konni væri í alvöru að tala og væri raunverulegur sonur Baldurs. Jafnvel sum stærri og eldri börn trúðu þessu.
Litlu sætu og trúgjörnu börn nútímans sem trúa á "töframanninn, búktalarann og skemmtarann" Stefán Pálsson að hann sé trúr og sannur er kommaliðið úr VG ásamt handfylli af nokkrum öðrum,svo sem öfgafullum femínistum. Það er í sjálfu sér hugljúft að sjá lítil og saklaus börn gleðjast. Jafnvel þau stærri. Mig langar til að gefa þeim "candý-floss" og rjómaís að sleikja og njóta þess að sjá þessi elsku börn lifa í vökudraumi um hetjuna sína.
Að vilja Stefán Pálsson í stöðu forstjórastarf Varnamálastofu er jafn fyndið og fráleitt og að mæla með að þrenningin; Georg W. Bush forseti BNA, Dick Cheeney varaforseti BNA og Donald Rumsfeld fyrrverandi stríðs- og innrásarmálaráðherra BNA, sem eru/voru aðalfyrirliðar stærstu hryðjuverkasamtaka heimsins, deildu með sér Friðarverðlaunum Nóbels.
Formaður SHA sækir um forstjórastarf Varnarmálastofu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.