7.5.2008 | 02:12
Hví eru þessir andskotans krakkar að valda landlækni þessum kvíða!
Að horfa á og hlusta á þetta myndband, þá gerir maður sér grein fyrir því hvernig þessi krakkaskríll sem lætur gata á sér húðina (þótt það sé alveg löglegt að sögn landlæknis), og valda fyrir honum svefnleysi á nóttunni, hann getur ekki sofið. Hann getur ekki unnið á daginn fyrir áhyggjum og starfsfólk embættisins virðist vera hágrátandi í kór af áhyggjum einum saman. Þetta er sá boðskapur sem við fáum úr þessu viðtali við fulltrúa Landlæknisembættisins í þessu myndbandi.
Hvers vegna er þessi krakkaskríll að fara svona með aumingja Landlæknisembættið?
Kveðja, Björn bóndi.
![]() |
Húðgötun veldur áhyggjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.5.2008 | 02:03
Beið aftöku í 20 ár.
Þessir hræsnarar í BNA sem eru að berjast fyrir mannréttindum út um allan heim, nema heima hjá sjálfum sér. Að vera að tuða um það í mörg ár hvernið á að drepa manninn? Láta hinn dæmda bíða milli vonar og ÓTTA í 20 ár. Rafmagnsstóllinn var þannig að hinir dauðadæmdu voru steiktir í stólnum og tók oft nokkrar mínútur í sumum tilfellum að murka líftóruna, með ólýsanlegum kvölum, úr þeim áður en yfir lauk. Ég er algjörlega á móti dauðadómum. - En, ef dauðadómur skal það vera, þá eru arabar með hálshögg og kínverjar með skot í hnakkann það miskunnsamasta í svona hryllingi sem þekkist. Tekur af í hvelli.
Kær kveðja, Björn bóndi.
![]() |
Maður tekinn af lífi í Georgíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)