Færsluflokkur: Bloggar
14.1.2009 | 11:37
En gluggarúður og glerhurðir hjá Fjármálaeftirlitinu?
Ætla þessir hálfvitar þá einnig að bæta skaðann á glerhurðunum sem þeir ollu hjá Fjármálaeftirlitinu og sem náðist á myndband?
Kveðja, Björn bóndi
Bjóðast til að greiða skaða Stöðvar 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.1.2009 | 19:12
Það er ekkert náttúrulögmál að allar styrjaldir sem BNA heyja séu háðar utan lands þeirra sjálfra.
Hatrið sem Bandaríkjamenn hafa skapað sér um allan heim, jafnvel á vesturlöndum, hinu gamla vígi þeirra, gerir það að verkum að samúðin með þeim fer sífellt þverrandi og árás á þeirra eigin land mun ekki koma svo mörgum á óvart, ef og/eða þegar af því verður.
Kveðja, Björn bóndi
Hugsanleg árás helsta ógnin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2009 | 17:23
Skrópa hvað?!
Þessi drengur er flottur!
Kveðja, Björn bóndi
Ók sjálfur í skólann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2009 | 15:16
12 úr sömu fjölskyldu VORU MYRT.
Andlát og MORÐ eru ekki sömu hlutirnir. Hvenær ætlar Morgunblaðið að læra að kalla hlutina sína réttu nöfnum?
Kveðja, Björn bóndi
12 úr sömu fjölskyldu létust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2009 | 10:16
Úlfurinn, lambið og alþjóðasamfélagið..........
Dæmisögur Esóps; Sögupersónur; Úlfurinn = Ísrael og Lambið = Palestínía.
Einu sinni var Lambið að drekka úr læk. Þá kemur Úlfurinn og tyllir sér ofan lækjar og áður en hann fer að drekka segir Úlfuninn við Lambið: "Ef þú gruggar fyrir mér vatnið í læknum á meðan ég er að drekka, þá drep ég þig og ét þig." Lambið sem var neðan lækjar og gat því ekki gruggað vatnið fyrir Úlfinum sagði: "Ég skal ekki grugga fyrir þér vatnið."
Nú fór Úlfinum að leiðast að hafa þetta Lamb drekkandi sífellt úr læknum sem hann þóttist eiga. Þá voru góð ráð dýr. Úlfinum datt þá eitt þjóðráð í hug! Úlfurinn gruggaði upp vatnið hjá sér sjálfur og hrópaði á Lambið: "Sjáðu hvað þú hefur gert! Þú hefur gruggað fyrir mér vatnið mitt! Nú ætla ég að drepa þig og éta, til að hefna mín, ég var fyrir löngu búinn að vara þig við!" Síðan réðst Úlfurinn á Lambið, drap það og át."
Það var gert við mikla hrifningu Bandaríkjamanna og Evrópusambandsríkin stóðu stutt frá og klöppuðu Úlfinum lof í lófa, því nú væri loksins komin friður á í kringum lækinn.
Endursagt og staðfært af Birni bónda
Æfðu innrásina í átján mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.1.2009 | 14:40
"Gjör mér ei það sem ég gjöri yður."
Þetta er Karmalögmálið á fullri ferð. Svo uppskerð þú sem þú sáir.
Kær kveðja, Björn bóndi
Ráðist gegn Nornabúðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
1.1.2009 | 16:27
Hvað er greiðsla fyrir vændi? - "Kaup á vændi bannað"
Hvað er greiðsla fyrir vændi? Flottur kvöldverðir og hádegisverðir með dýrindis vínum og ókeypis dvöl á dýrustu svítunni á Nordica Hótel yfir helgi (langur dráttur), eða loðkápa úr dýrasta sjakala skinni, eða umslag með kr.30.000 í seðlum fyrir eina nótt, kr. 90.000 í seðlum fyrir 3 nætur, eða 2ja vikna dvöl með karli á hóteli á Flóríða USA með "room-service" eða lítill sætur Toyota Yaris með framhjóladrifi fyrir eða eftir helgardvöl á sveitahóteli meðp giftum manni eða demantsarmband + konfektkassi og blómabúkett frá Blómaverkstæði Binna fyrir nóttina?
Þetta væri gaman að fá að vita, því kunningja minn sem er mjög óframfærinn og feiminn og mér þykir vænt um, vantar löglegan drátt hjá konu sem kann meiri þrifnað en að snúa nærbuxunum við einu sinni í viku með tilheyrandi skítalykt, sem er það sem hann fær á bjórbúllunum í Reykjavík og kostar ekki meira en einn sígarettupakka, tvo sjússa og 3-4 hálfslíters bjóra. Það skilst mér sé ekki vændi í kokkabókum Femínasnanna sem mæla þessarri vitleysu bót.
Kær kveðja, Björn bóndi
Kaup á vændi orðin ólögleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
29.12.2008 | 16:01
Hverjir lesa "slúður" og hverjir lesa "íþróttafréttir"? Karlar - konur?
Hefur þessi ágæta kona Kristín Ása Einarsdóttir sem gerði könnun fyrir B.A.-ritgerð sína í félagsfræði við Háskóla Íslands, rannsakað hvers kyns lesendur slúðurfrétta eru? (Aðallega kvenmenn á ég von á). Hverjir lesa íþróttafréttir karla? (Aðallega karlmenn á ég von á) ... og í hvaða hlutfalli við hve margir karlar lesa slúðurdálkana?
Hversu margar konur lesa íþróttafréttir um konur í íþróttum miðað við lesningu slúðurfrétta?
Er ekki framboðið aðeins til að mæta eftirspurn? Mér er spurn!
Að háskólamenntaður félagsfræðingur skuli nenna að vera að koma með þetta eilífðar Femístavæl um að sífellt sé hallað á kvenfólk. Af hverju fær hún sér ekki vinnu í fiskiðju við flökun eða eitthvað til að hjálpa til koma þjóðarskútunni á réttan kjöl? Eilífðar væl væl væl.
Kveðja, Björn bóndi
Hallað á konur í netmiðlum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2008 | 10:12
Tökum Jón Ásgeir til fyrirmyndar og förum að vinna.
Hvernig væri nú að fara að vinna og bjarga því sem bjargað verður, frekar en að vera eins og ræsisrottur að leita að einhverjum til að hengja á fótunum. Jón Ásgeir, Jóhannes Jónsson og Bónusverslanirnar gerðu það að verkum að ég átti fyrir nægum mat til að duga yfir Jólin og mun duga vel fram yfir áramótin.
Mótmælendurnir 500 sem mættu á Austurvöll á laugardag (rúmlega 0,1% þjóðarinnar) eru áreiðanlega ekki í Landsliðinu sem nú er í dag að vinna að því að rétta þjóðarskútuna við.
Áður var þörf, en nú er nauðsyn að Íslendingar standi saman við að bjarga því sem bjargað verður. Þeir sem ennþá hafa vinnu, nýti sér það til fullnustu, hinir haldi áfram að leita sér að vinnu. Atvinnumótmælendur hætti að rífa það niður sem vinnandi fólk er að gera til uppbyggingar.
Með bjartsýni og jákvæðni að vopni. Bíta á jaxlinn og kreista fram bros og axla það ok sem þarf til að koma Þjóðarskútunni aftur á skrið. Íslendingum er í blóð borið að eiga við áföll í gegnum aldirnar frá þeim tíma um árin 1350 þegar "Litla ísöldin" hófst með "Hinum dimmu miðöldum", harðæri, Móðuharðindin, Svarti-Dauði, Stóra-Bóla, Ríkiskirkjan, niðurlæging Einokunarverslunar Dana, hungurdauði sem var daglegt brauð, Stórbændaveldið, Framsóknarflokkurinn, Átthagafjötrar og síðast en ekki síst fordómar okkar á sjálfa okkur eins og tröllríður nú íslensku þjóðfélagi, með eyðileggingaröflum atvinnumótmælenda, kommúnista, anarkista, níhílista og annarra stjórnleysingja, karlhaturshreyfinga ("niður með feðraveldið"), Jón Gerald Sullumborgari, hommafrontinn sem skipuleggjur óeirðirnar því þeir fengu ekki næga sjálfsauglýsingu á "Hinsegin dögum" og síðast en ekki síst; fjölmiðlar svo sem "Kastljós" og "Silfur Egils" sem eru óvinveittir uppbyggingu og leita að blórabögglum til að sjá blóð renna.
Með baráttukveðjum, Björn bóndi
Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.12.2008 | 16:19
Dæmisögur Esóps um Palestínu/Zíon-Ísrael