Er rétt að öfunda fanga í betrunarvist?

Það er skylda hvers manns, karls eða konu, við Guð sinn, fjölskyldu sína og sjálfan sig að láta sér líða eins vel og kostur er á hverjum degi, hvort sem viðkomandi hafi atvinnu, er atvinnulaus, liggi á sjúkrahúsi eða er í fangelsi o.s.frv. 

Ég man fyrir örfáum árum þegar umfjöllun var um það hvað fangar á Litla-Hrauni höfðu flottan Jólamat, að þá voru "kerlingar" af báðum kynjum að vandræðast yfir því hvað meennirnir hefðu það gott.  Ég held að það séu mjög fáir sem gera sér up glæpi til að komast í fangelsi, hvort sem er með mannsæmandi aðbúnaði eða verri aðbúnaði.

Góðir foreldrar hegna ekki barni sínu bara fyrir að það sé óþægt, nema þeir foreldrar sem hafa átt sjálfir erfitt uppeldi og kunna ekki betur. 

Kvðeja, Björn bóndi    Smile


mbl.is Lúxus á bak við rimlana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að fórna nokkrum kornabörnum Eva? Til að brýna vargaseyðinn!!!

 

Þessi kona (norn og stjórnleysingi) Eva Hauksdóttir mælir með því að kornabörnum fé fórnað af mæðrum þeirra með því að leggja þau fyrir vinnuvélar til að stöðva virkjunarframkvæmdir. 

Sjá nánar: http://sapuopera.blog.is/blog/sapuopera/entry/601346/

Lesið ekki bara innganginn, heldur athugasemdirnar og tilsvör Evu Hauksdóttur þar sem hún mælir með slíkum kornabarnamorðum!!!

Með kveðju, Björn bóndi.  Smile


mbl.is Vargastefna við Stjórnarráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve mikil í raun er samstaða mótmælenda??

 

Til hamingju öll saman með Fullveldisdaginn!    Nú á fullveldeginum 1. des og þjóðin ásamt, fjölmiðlum, nánast "öll" er sammála um að koma á byltingu, a.m.k., helst að nota Bankok/Tælensku aðferðina við að koma ríkisstjórninni, Seðlabankastjórn og Bankaeftirlitisstjórn frá. 

Hefur verið gerð hafi verið skoðanakönnun hjá mótmælendahópnum sem vilja koma nýrri "þjóðstjórn" að um helstu ágreiningsmálin?

Skoðanakönnunin yrði eftirfarandi:

Af mótmælendum og þeim sem vilja núverandi ríkisstjórn og yfirstjórnir banka- og peningamála;

1. Hve mörg prósent (%) af mótmælendum vilja Evru (€) sem gjaldmiðil?

2. Hve mörg prósent (%) af mótmælendum vilja ekki Evru (€) sem gjaldmiðil?

3. Hve mörg prósent (%) af mótmælendum vilja að Ísland gagni í ESB?

4. Hve mörg prósent (%) af mótmælendum vilja ekki að Ísland gangi í ESB?

Ég vil endilega að skoðanakönnunin sé bundin við mótmælendur, ekki þjóðina í heild! 

Gott væri að einhver hlutlaus fjölmiðill gerði skoðanakönnun um það hvað þessi "samstillti" hópur mótmælenda sem vill þjóðstjórn til að leysa öll mál eru í raun samstillt?! 

Kær kveðja, Björn bóndi  Smile 


mbl.is Hörður óvenjuleg byltingarhetja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband