Áður var þörf en nú er nauðsyn á styrkri forystu.

Mér er sama þótt Davíð hafi gert slæma skyssu varðandi Íraksmálið, nokkuð sem ég á erfitt að fyrirgefa honum.  Ísland þarf trausta forystu sem kann og getur stýrt landinu og komið okkur upp úr þessar hörmulegu lægð (kreppu) sem þjóðin er komin í efnahagslega. 

Davíð Oddsson hefur sýnt það að hann kann og getur.  Hatrið, blóðþorstinn og tilhneying almúgans (sbr. franska byltingin) til að hefna sín á "einhverjum" er alltaf fyrir hendi.  Þegar svo mótmælendahópurinn er búinn að baula og særa nægju sína, þá er kominn tími til að bretta upp ermarnar og koma okkur upp úr þessum djúpa öldudal.

Þótt fyrri stjórn hafi gert mistök, þá voru góðu verkin sem voru miklu, miklu fleiri sem töluðu.  Látum þá sömu koma okkur uppúr erfiðleikunum.  Reynslan hefur kennt þeim hvað ber að varast.

Við vitum að kommar, niðurrifsmenn og anarkistar; Skallagrímur (S.J.S.), Kolbrún Halldórsdóttir, Ögmundur Jónasson og þeirra kónar eru ekki þeir sem við þurfum til að skemma meir en orðið er.

Kv., Björn bóndi.    Smile


mbl.is Miserfitt að hætta í pólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

svo sammála þér... DAVIÐ ODDSON ER MAÐURINN!

óli (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 16:00

2 Smámynd: Eygló Sara

Heyrðu ég vara bara að enda við að blogga um hann rekst svo á greinina þín;) Áfram Davíð

Eygló Sara , 5.12.2008 kl. 17:23

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú ert nú meiri húmoristinn, Bangsaskottið mitt!  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 5.12.2008 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband