Sendi eiginkonuna til Pakistan til að skilja við (drepa) hana.

Þetta hljómar eins og í ódýrri glæpasögu.  Eiginkonan er send til Asíu þar sem er horft framjá sæmdarmorðum.  Nú er eiginmaðurinn orðinn ekkill og getur fengið sér nýja eiginkonu. 

Án þess að vera rasisti; er hægt að ímynda sér að rétt sé að hafa einhvern aðskilnað á milli menningarheima?

Það þarf að gera mun á því að; a) að fara í heimsókn til annarra menningarheima sem ferðamaður og/eða könnuður eða b) að flytjast búferlum með sig, menningu sína, fjölskyldu (og síðan stórfjölskyldu, þ.e., afa, ömmur, frændur og frænkur).

Kveðja,

Björn bóndi.


mbl.is Reiði í Danmörku vegna sæmdarmorðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ert þú hugsanlega haldinn einhverjum fordómum gegn fjölmenningu?

Sigurður Þórðarson, 1.7.2008 kl. 15:36

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

"Án þess að vera rasisti" - Huh, heldur þú virkilega að múslimar geti ekki verið rasistar?

Nei Sigurbjörn er auðvitað ekki rasisti. Höfundalýsing hans inniheldur þessa lýsingu "Þekkir marga múhameðstrúarmenn og búddista sem eru flestir betra og heiðarlegra og umburðarlyndara en framámenn í hinni íslensku þjóðkirkju".

Þekkir þú einhverja Íslendinga sem senda konur sínar heim til að láta kála þeim?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.7.2008 kl. 15:49

3 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Fjölmenning er kjaftæði

Alexander Kristófer Gústafsson, 1.7.2008 kl. 18:53

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Morð af öllum toga eru bönnuð í Pakistan en það er glæpahyski þar sem víðar. Sé ekki hvað þetta mál hefur með fjölmenningu að gera? Að nota ólöglegt framferði eins og morð sæmdar eða hvað það heitir, sem rök gegn fjölmenningu finnst mér afar ósannfærandi. Fjölmenning getur aðeins lukkast þar sem ein lög eru í gildi, þ.e. lög þess lands sem búið er í.  Í dag er t.d. ólöglegt hér í Bretlandi að umskera kvennfólk. Ef að stúlkan er fædd í Bretlandi og upp kemst að hún hefur verið umskorin eru foreldrar hennar sóttir til saka.

Svanur Gísli Þorkelsson, 1.7.2008 kl. 19:06

5 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Fjölmenning segjir að allar menningar séu jafnar sem er lygi.

Alexander Kristófer Gústafsson, 1.7.2008 kl. 19:56

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Alexander; Hvað átt þú við með "jafnar"? Fjölmenning er ekki að ein menning hreiðri um sigóbreytt  inn í annarri. Fjölmenning er þegar að menningarlegir siðir og hættir sem samræmast lögum landsins.

Svanur Gísli Þorkelsson, 1.7.2008 kl. 20:19

7 identicon

Trúarpólitísk tengsl heiðursmorðA  við Íslam ótvíræð.

Það er mikill misskilningur að álíta að heiðursmorð eigi sér ekki ríka stoð í hinu pólitíska Íslam.  Það er auðvelt að rökstyðja það og nægar sannanir fyrir hugsanaferlinu á bakvið heiðursmorðin.  Þær slóðir liggja allar til Kóransins, og Annálanna. 

Heiðursmorð í Íslam

Stórt atriði er að þegar kona giftist manni af öðrum trúarhópi eða grein Íslams, þá gerist hún fyrrverandi-Múslími og þar með réttdræp.  Einnig er stúlkan í stór hættu ef væntanlegur maki er ekki þóknanlegur fjölskyldunni einhverra ástæðna vegna.  Sama skeður ef hún vill temja sér vestræna lífshætti, þá er hún einnig orðin  fyrrverandi-Múslími (apostate,  fráhvarfsmaður frá trúnni)

 

 

Úr 4. Kafla  88-89  "Viltu reyna að leiðbeina þeim sem Allah hefur afvegaleitt? Þá sem Allah hefur afvegaleitt skaltu ekki reyna að leiðbeina. Þeir þrá að þú verðir trúleysingi svo þú verðir eins og þeir sjálfir; þess vegna skaltu ekki gera þá að vinum þínum nema þeir flýi frá sínum fjölskyldum til að þóknast Allah, en ef þeir snúa aftur heim til sín skaltu elta þá uppi og drepa þá hvar sem þú finnur þá, en leitaðu ekki aðstoðar eða vinskapar meðal þeirra." 

 

Ég vil benda á eftirfarandi greinar um HEIÐURSMORР og slóðirnar að þeim:

HEIÐURSMORÐ OG STAÐA KVENNA Í ÍSLAM

http://hermdarverk.blogcentral.is/blog/2008/4/21/heidursmord-og-stada-kvenna-i-islam/

HEIÐURSMORÐ, 9. GRÖFIN Í FJÖLSKYLDUNNI.

http://hermdarverk.blogcentral.is/blog/2008/4/22/heidursmord-9-grofin-i-fjolskyldunni/

Athyglisverð stuttmynd um heiðursmorð.

Everywoman- Honour Killings- 07 Dec 07- Part 2

http://www.youtube.com/watch?v=PZ0XHZhlpBc

 

 

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 10:32

8 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Það að sumar menningar eru verri en vestrænar.

Alexander Kristófer Gústafsson, 2.7.2008 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband