Óþægilegar minningar og staðreyndir - landbúnaður að leggjast af?

Neytendastofa, kratasamsullið (Samfylkingin) og Vinstri Grænir, vilja fórna matvælaframleiðslu á Íslandi fyrir skammtímasjónarmið sem er að flytja inn ódýrari matvæli sem eru niðurgreidd af ríkisstjórnum,spákaupmönnum og áhættu-og stórfjárfestum, en sem við getum framleitt vegna hnattlegu Íslands og veðráttu, þ.e.a.s., mólk og mjólkurafurðir, kjöt o.s.frv., o.s.frv. sem eru ekki niðurgreidd á Íslandi.  Bara til að spara nokkrar krónur í dag og "nokkra daga" líklega í nokkra tugi ára,  en þó líklega mikið fyrr.  Engan fórnarkostnað til að halda áfram matvælaframleiðslu.  Komandi kynslóðir skulu erfa vandann.  Þá leggst bændastéttin og aðrir matvælaframleiðendur mestmegnis af. Þegar svo matvara hækkar erlendis vegna skorts á matvælum, eftir nokkra tugi ára, þá  er landbúnaðurinn búinn að vera á heljarþrömm og lagður af.  Þá þarf að byrja matvælaframleiðslu uppá nýtt og það er erfiðara en sem tárum tekur. Þessir bjánar vilja ekki líta til framtíðar í matvælamálum, bara spara í dag af pólitískum ástæðum; “Skammtíma lýðhylli” – og- “Sjáið þið hvað við gerðum, VIÐ lækkuðum matarverð fyrir öreigana.”Duldar staðreyndir:Matvaran frá þeim löndum sem við ætlum að flytja inn "ódýra" matvöru frá, er niðurgreidd af stjórnum, spákaupmönnum og stórfjárfestum hvers lands. Þeir hugsa mörg ár fram í tímann sem íslenskir komma- og aðrir vinstriflokkar og Neytendastofa gera ekki.  Þegar þeir eru síðan búnir að drepa niður framleiðslu annarra landa með niðurgreiðslum, hvað er gert þá?  Þá er niðurgreiðslum hætt því samkeppnin hefur verið niðurdrepin.  Verðið hækkað og gróðaveisla byrjar hjá erlendum matvöruframleiðendum. SÍS gamla sem réði kaupfélögunum gerðu þetta í smábæjum úti á landi.  Þeir fýruðu niður verslunarverðinu þangað til að aðrar verslanir í smábæjunum lögðu upp laupana og lokuðu.  Þá fýruðu kaupfélögin verðinu upp úr öllu valdi. SÍS reyndi þetta í Reykjavík eftir að KRON (Kaupfélag Reykjavíkur Og Nágrennis) fóru á hausinn.  Þeir opnuðu stórmarkað í Holtagörðum undir nafninu MIKLIGARÐUR.  Þar reyndu þeir að brjóta niður aðrar smærri stórverslanir með undirboðum, þannig að þeir töpuðu um milljón á dag þá, sem er u.þ.b. 2-4 milljónirá núvirði.  Síðan fóru þeir á hausinn einsog frægt - guði sé lof.  Reykvískir verslunarmenn, bæði heildsalar og smásalar sáu við þeim.  Þeir þekktu söguna og aðferðirnar, höfðu lært þeirra aðferðir á landsbyggðinni.

Neytendasamtökin og vinstra pakkið vita söguna og þekkja aðferðirnar, en neita að muna eftir svona óþægilegum staðreyndum,vegna pólitískra skammtíma hagsmuna.


mbl.is Segir matvælakreppuna mannréttindakreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Þú hefur mikið til þíns máls, hvernig í ósköpunum geta íslenskir stjórnmálamenn verið svo skammsýnir að ætla sér að auka innflutning búvara sem eingöngu verður til þess að bændur framleiða minna, sem aftur kemur okkur um koll þegar að skortur verður á matvælum til innflutnings

Guðrún Sæmundsdóttir, 3.5.2008 kl. 08:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband