Live and let live.

Hversvegna er þessi móðursjúklega hystería í gangi um hvað annað fólk gerir, þó það sé að skoða fallegan einstakling af hinu kyninu, þótt viðkomandi hafi fækkað fötum?  Síðan er alltaf sama spurningin: "Myndir þú vilja að börnin þín stunduðu þessa iðju?"

Þetta er ekki bara spurningin um hvort karlmenn séu að skoða konur.  Hafið þið séð kvikmyndaskot af því þegar konur eru að skoða karl-strippara?  Þær bókstaflega tryllast, æpa, garga, orga, hlæja og skemmta sér.  Hvað er að því?

Það eru mörg störf sem ég myndi ekki óska eftir að börnin mín tækju sér fyrir hendur, en ég á þó nokkur af báðum kynjum og orðin fullorðin og komin úr foreldrahúsum. Sem dæmi myndi ég ekki óska mér að þau yrðu hermenn úti í hinum stóra heimi svo ég taki dæmi.  Hinsvegar hef ég haft það fyrir sið að skipta mér ekki af því sem þau ákveða að gera og taka sér fyrir hendur.  Ég vil ekki vera nöldrandi aðfinnslusamt foreldri sem reynir að innleiða sektarkennd hjá afkvæmum sínum (jewish mother syndrome).  Þessvegna er samband milli mín og barnanna minna og barnabarnanna mjög gott og þau veigra sér ekki að hafa samband hvenær sem þau þurfa. "Live and let live".


mbl.is Harðir á strippinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband