Mótmælandi með kornabarn sitt bundið um sig að framan.

Það er allt gert til áróðursbragða.  Í gærkveldi, í Kastljósinu voru sýndir mótmælendur sem voru að gera aðsúg við Stjórnarráðið.  Þar var einn mótmælandi, karlmaður, með klút um andlitið og hafði hann kornabarn bundið um sig að framanverðu! með þar til gerðum "axlaböndum".  Það hefði orðið ansi gott áróðursbragð um "ofbeldi lögreglunnar" ef þessum manni hefði tekist að fá lögreglumann til að stugga við sér: "Lögreglumaður ræðst á og sýnir föður með kornabarn í fanginu, ofbeldi ... o.s.frv."  Það eru fleiri en Eva Norn og Helga Vala Helgadóttir fjölmiðlamaður sem otar afkvæmi sínu til áróðursbragða.  Hver t.d., kom með 11 ára barn sitt í skíðagalla inná Alþingishúsgarðinn, til að geta síðan hrópað: "Ofbeldi Lögreglunnar á börnum" (það var Helga Vala fjölmiðlamaður og móðir handtekins mótmælanda (17 ára "stúlkubarns") sem hrópaði í viðtali við sjónvarpsfréttamann).  Helga Vala skammaðist sín heldur ekki fyrir það að segja að: "Hún hefði alið dóttur sína upp við það hvernig ætti að mótmæla" í sjónvarpsviðtalinu.  - Svei!

Kveðja, Björn bóndi  Smile 


mbl.is Lögreglumaður enn á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: doktorinn

Vel mælt. Það væri viðeigandi að barnaverndaryfirvöld myndu taka á þessum einstaklingum sem nota börn sín svona.

doktorinn, 22.1.2009 kl. 10:52

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Þetta er gamalt trix, oft notað í styrjöldum í gamla daga. John Hawkwood notaði þetta meðal annars á Ítalíu. Safnaði saman konum, krökkum og einhverjum lúðum sem hann rak á undan hernum. Ferlegt fyrir óvinaherinn að byrja á því að drepa sitt eigið fólk.

Baldur Hermannsson, 22.1.2009 kl. 10:55

3 identicon

Ábyrgðarlaust lið.  Eru að bjóða hættunni heim.

Baldur (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 10:57

4 Smámynd: Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir

Og hvernig fullorðin persóna þetta blessað barn verði seinna meir   Hann sló í  bakið á barninu til að herða í því, greinilega maður sem lætur hnefann tala.

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 22.1.2009 kl. 11:07

5 identicon

Vonum að yfirvöld taki í taumana og komi þessu vesling barni í fóstur.  Það er ekki mikil framtíð í þessu

Baldur (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 12:37

6 Smámynd: Linda

komon Björn, þetta er þekktasta bragð í heimi þessa dagana að nota börn í áróðurskini, þú hefur sjálfur séð slíkt oftar en einu sinni, íslenskir öfgamenn eru bara búnir að læra af Hömsunum á Gaza.  Þvílíkur viðbjóður, að hálfu væri nóg.

Linda, 22.1.2009 kl. 13:04

7 identicon

Sammála þér!

Valur (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 17:24

8 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Þetta er meira en ljótt.

Marta Gunnarsdóttir, 22.1.2009 kl. 23:08

9 identicon

Bara barnavermdar mál svo einfalt er það....

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 02:51

10 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég smíða hér með orðið mótmælandarungi og mótmæli því um leið að slíkar skurnafurðir séu nýttar til svona brútal brúkelsis!

Kossáðig í leiðinni, Bangsaskott.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 26.1.2009 kl. 01:11

11 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

P.S. Þetta var ljótt á Gaza. Þetta er líka ljótt í Reykjavík. Það á að halda smábörnum frá stöðum þar sem búast má við átökum.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 26.1.2009 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband